Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Lögfræðingur með brennandi áhuga á samkeppnismálum

3. febrúar 2026

Samkeppniseftirlitið leitar að öflugum lögfræðingi sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í mótun samkeppnisréttar á Íslandi. Lögfræðingar Samkeppniseftirlitsins taka þátt í og bera ábyrgð á rannsóknum og úrlausnum samkeppnismála á ýmsum sviðum atvinnulífsins ásamt því að sinna öðrum áhugaverðum verkefnum og lögfræðilegum úrlausnarefnum á sviði samkeppnisréttar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á trausta lögfræðilega þekkingu.

 

Helstu verkefni:

  • Rannsókn og úrlausn samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins
  • Greining og úrlausn annarra lögfræðilegra álitaefna
  • Greiningar á mörkuðum og samkeppnisstöðu fyrirtækja
  • Skrif álita og skýrslna auk umsagna til Alþingis og ráðuneyta
  • Þátttaka í erlendu samstarfi

 

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
  • Reynsla af samkeppnis- eða stjórnsýslurétti
  • Reynsla og þekking á Evrópurétti kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði við úrlausn viðfangsefna
  • Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni í samskiptum og þverfaglegri samvinnu
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, í mæltu og rituðu máli. Þekking á Norðurlandamáli kostur.
  • Þekking og áhugi á hagfræði og viðskiptalegum málefnum er kostur.

 

 

Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Eva Ómarsdóttir, verkefna- og teymisstjóri (eva@samkeppni.is) og Karítas Margrét Jónsdóttir, rekstrarstjóri (karitas@samkeppni.is) í síma 585-0700.

 

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Sótt er rafrænt um starfið á starfatorg.is. Starfshlutfall er 100%. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags. Æskilegt er að starfsmaður hefji störf sem fyrst en það er þó samkomulagsatriði.

 

Um Samkeppniseftirlitið

Samkeppniseftirlitið hefur eftirlit með samkeppni fyrirtækja í síbreytilegu atvinnulífi landsins. Eftirlitið spornar við óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinnur gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðveldar aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.

 

Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar fjölbreyttur og þverfaglegur hópur sérfræðinga sem hefur brennandi áhuga á samkeppnismálum. Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á að starfsmenn þess fái tækifæri til að sinna spennandi verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

 

www.samkeppni.is

Samkeppniseftirlitið áskilur sér rétt til þess að ráða á grundvelli auglýsingarinnar næstu sex mánuði eftir birtingu hennar, sbr. reglur um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019. Við ráðningar hjá Samkeppniseftirlitinu er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun stofnunarinnar.

Sótt er rafrænt um störfin á www.starfatorg.is.

 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.