Kaup Ölgerðarinnar á Gæðabakstri – umsagnarferli
Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna Ölgerðar Egils Skallagrímssonar hf. og Gæðabaksturs ehf.
Ölgerðin og dótturfélag þess Danól starfa við framleiðslu og sölu á drykkjarvörum, bæði gosdrykkjum og áfengum drykkjum, en einnig innflutning og heildsölu á ýmis konar matvöru og sérvöru, til dagvöruverslana, stóreldhúsa, veitingastaða, bakaría o.fl.
Gæðabakstur ehf. starfar við framleiðslu og heildsölu á margvíslegu brauðmeti og kökum, m.a. til dagvöruverslana, undir merkjum Gæðabaksturs, Ömmubaksturs og öðrum vörumerkjum.
Samrunatilkynning vegna kaupa Ölgerðarinnar á Gæðabakstri, þar sem tilkynnandi lýsir samrunanum og samkeppni frá sínu sjónarhorni, er aðgengileg hér .
Öllum hagaðilum og áhugasömum er hér með veitt tækifæri til þess að koma á framfæri sjónarmiðum vegna samrunans, til dæmis um markaðsstöðu Ölgerðarinnar (Danól) og Gæðabaksturs, um möguleg áhrif samrunans á samkeppni, aðstæður á viðkomandi mörkuðum, og um önnur atriði sem fyrirtækin fjalla um í samrunatilkynningu eða sem umsagnaraðili kann að vilja koma á framfæri vegna samrunans.
Umsagnir sendist með tölvupósti á gogn@samkeppni.is og vegna lögbundinna tímafresta í samrunamálum skulu þær berast eigi síðar en föstudaginn 11. júlí nk.
Innihaldi umsagnir trúnaðarupplýsingar er mikilvægt að taka slíkt fram og senda einnig eintak þar sem trúnaðarupplýsingar hafa verið fjarlægðar.