3.6.2025

Norrænu samkeppniseftirlitin í samstarf við eina fremstu hagfræðideild í heimi

  • Untitled-design-94-

Samkeppniseftirlitin í Danmörku, Noregi, Finnlandi og á Íslandi hafa hafið samstarf við Toulouse School of   Economics (TSE) sem er ein fremsta hagfræðideild í heimi á sviði atvinnuvegahagfræði.

Með samstarfinu munu starfsmenn Samkeppniseftirlitsins fá aðgang að víðtækri þekkingu rannsakenda TSE í beitingu hagfræðilegra aðferða við úrlausn samkeppnismála. Samstarfið mun einnig fela í sér vinnustofur þar sem fjallað verður um álitaefni þvert á landamæri og fræðasvið.

Markmiðið með samstarfinu er að efla eftirlit með samkeppni og styrkja úrlausnir samkeppnisyfirvalda.

„Samstarf við háskólasamfélagið er Samkeppniseftirlitinu afar mikilvægt. Við hlökkum til að takast á við flókin hagfræðileg álitaefni með sumum af fremstu hagfræðingum heims og með því efla starf stofnunarinnar.Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins.