Samkeppni Logo

Símanum gert að endurnýja samning um dreifingu og heildsölu við Nova á Símanum Sport sem býður upp á ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu

31. október 2025

Samkeppniseftirlitið
hefur í dag tekið ákvörðun 30/2023 til bráðabirgða vegna
sennilegs brots Símans á samkeppnislögum með því að synja Nova um heildsölu og
dreifingu á Símanum Sport sem inniheldur útsendingar á ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu eða enska boltanum.

Frá
því Síminn fékk rétt til sýninga á ensku úrvalsdeildinni árið 2019 hefur Síminn
boðið efnið (Símann Sport) í gegnum Heimilispakkann og Sjónvarp Símans Premium.
Síminn hefur einnig boðið þjónustuna í stakri áskrift og það hafa Sýn og Nova
einnig gert með því að kaupa efnið í heildsölu og bjóða það sínum
viðskiptavinum.


bregður svo við að Síminn hefur neitað að gera nýjan dreifingarsamning við Nova
um útsendingar á Símanum Sport sem þýðir að viðskiptavinir Nova hafa ekki
möguleika á að kaupa áskrift að enska boltanum.

Samkeppniseftirlitið
telur að í háttsemi Símans felist sölusynjun fyrirtækis sem býr yfir mikilvægri
og vinsælli vöru til endursölu og að það myndi fela í sér skaðleg áhrif fyrir
samkeppni á fjarskipta- og
sjónvarpsmörkuðum hér á landi ef Nova gæti ekki lengur boðið sínum
viðskiptavinum upp á Enska boltann. Þá telur eftirlitið að háttsemi Símans feli
í sér mismunun gagnvart keppinautum þar sem Sýn fær áfram að bjóða sínum
viðskiptavinum Enska boltann en ekki Nova.

Samkeppniseftirlitið
telur að Síminn sé markaðsráðandi á markaði fyrir heildsöludreifingu á Enska
boltanum og að þessi háttsemi Símans fari gegn ákvæði samkeppnislaga sem bannar
misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Samkeppniseftirlitið
telur að umrædd háttsemi grundvallist hvorki á málefnalegum né hlutlægum
forsendum. Háttsemi Símans er til þess fallin að skaða samkeppni og keppinautum
sem hafa verið þrír (Síminn, Sýn og Nova) fækkar í tvo.

Í
bráðabirgðaákvörðuninni er þeim fyrirmælum beint til Símans að láta af háttsemi
sinni gagnvart Nova og gera þegar samning við fyrirtækið um heildsölu og
dreifingu á Símanum Sport með Enska boltanum. Þá telur eftirlitið að skilyrði
til töku ákvörðunar til bráðabirgða séu uppfyllt. Er því sérstaklega mikilvægt
að samkeppnisyfirvöld grípi inn í og stöðvi háttsemina án tafar.

Bráðabirgðaákvörðunin
gildir til 31. janúar 2024. Hún er aðgengileg hér.

Um
bráðabirgðaákvarðanir:

Samkvæmt
3. mgr. 16. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 er Samkeppniseftirlitinu heimilt að
taka ákvarðanir til bráðabirgða um einstök mál ef sennilegt þykir að sú
háttsemi eða þær aðstæður sem til athugunar eru fari gegn ákvæðum
samkeppnislaga eða ákvörðunum teknum á grundvelli þeirra. Skilyrði er að málið
þoli ekki bið. Í slíkum ákvörðunum er því ekki lagt endanlegt mat á hvort um
ólögmæta háttsemi sé að ræða.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.