Samkeppni Logo

Yfirtaka Regins hf. á Eik fasteignafélagi hf. – óskað eftir sjónarmiðum

10. október 2023

Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar valfrjálst yfirtökutilboð
Regins til hluthafa Eikar fasteignafélags. Fullnægjandi samrunatilkynning barst
Samkeppniseftirlitinu 29. september síðastliðinn. Afrit samrunatilkynningar án
trúnaðarupplýsinga má finna neðst í þessari grein.

Reginn og Eik eru fasteignafélög og snýr starfsemi þeirra
fyrst og fremst að því að fjárfesta í, leigja út og annast rekstur atvinnuhúsnæðis,
en félögin eiga fasteignir um allt land. Bæði félögin eru skráð á aðalmarkað
Kauphallar Íslands.

Þeim sem þess
óska er hér með boðið að koma á framfæri skriflegum sjónarmiðum,
svo sem um samrunann, möguleg samkeppnisleg
áhrif hans, um þá markaði sem samruninn hefur áhrif á og hvort eða hversu virk
samkeppni er fyrir atvinnuhúsnæði hérlendis, ásamt öðrum athugasemdum sem geta
skipt máli fyrir rannsóknina.

Er óskað eftir að slík sjónarmið berist Samkeppniseftirlitinu
eigi síðar en miðvikudaginn 1. nóvember á netfangið samkeppni@samkeppni.is merkt: „Sjónarmið
vegna samruna Regins og Eikar“
.

Þeir sem óska trúnaðar vegna umsagna, sjónarmiða eða
ábendinga í þessu samhengi geta tekið slíkt fram í umsögn sinni eða tölvupósti.

Samrunatilkynning án trúnaðarupplýsinga með frekari
upplýsingum um samrunann er aðgengileg hér.

Dagana 25. október til 1.
nóvember 2023 sér rannsóknarfyrirtækið Prósent um að safna
sjónarmiðum.
Við hvetjum þau sem hafa fengið tölvupóst frá Prósenti
að taka þátt. Farið verður með öll svör
sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndarstefnu Prósent.
Samkeppniseftirlitið fer með svörin sem trúnaðarmál með þeim takmörkunum sem
kann að leiða af rétti aðila stjórnsýslumáls til aðgangs að gögnum.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.