Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. NULL

Erlendar netverslanir og samkeppniseftirlit

28. mars 2019

Við mat samkeppnisyfirvalda á samkeppnislegum áhrifum samruna skiptir það samkeppnislega aðhald sem hið sameinaða fyrirtæki mun búa við í kjölfarið miklu máli. Því meira aðhald sem er til staðar, innlent sem erlent, því minni líkur eru á því að samruninn muni raski samkeppni.

Í nýlegum málum sem hafa verið til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu hefur samkeppnislegt aðhald erlendra netverslana verið tekið til skoðunar.

Kaup Haga á Lyfju

Við rannsókn á fyrirhuguðum kaupum Haga á Lyfju var metið að hversu miklu leyti erlendar netverslanir myndu veita hinu sameinaða fyrirtæki samkeppnislegt aðhald. Þar sem hið sameinaða fyrirtæki hefði öðlast sterka stöðu í smásölu snyrtivara á Íslandi skipti þetta atriði töluvert miklu máli. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi meðal annars í ljós að fáir smásalar snyrtivara á Íslandi litu á erlendar netverslanir sem sína helstu keppinauta. Af þeim 24 svörum sem bárust nefndi enginn snyrtivörusali hreina netverslun (e. pure online players) sem sinn helsta keppinaut né þann sem kæmi þar á eftir. Endurspeglaðist sú niðurstaða í neytendakönnun sem framkvæmd var fyrir Samkeppniseftirlitið í þessu máli en þar svöruðu um 8% því til að hafa keypt snyrtivörur í erlendri netverslun á síðastliðnum 12 mánuðum. Rannsóknin leiddi í ljós að samkeppnislegt aðhald erlendra netverslana í sölu snyrtivara á þeim tíma sem samruninn var rannsakaður virtist vera takmarkaður. Samruninn var ógiltur en samrunaaðilar áfrýjuðu ekki ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Kaup N1 á Festi og Haga á Olís

Við rannsókn á samrunum N1 og Festar og Haga og Olís var ekki þörf á því að rannsaka ítarlega það samkeppnislega aðhald sem erlendar netverslanir myndu veita samrunaaðilum í kjölfar samrunanna. Ástæða þess er einföld: Það erlenda samkeppnislega aðhald sem dagvöru- og eldsneytissalar búa við frá erlendum netverslunum er afar takmarkað. Á það við hér á landi sem og erlendis en alla jafna er samkeppni á þessum mörkuðum mjög staðbundin þar sem erfitt er fyrir smásala að flytja þessar vörur þvert á landamæri og svæði, nálægð við neytendur er yfirleitt mikilvæg og oft er þörf á vörunum með mjög skömmum fyrirvara.

Tekið er tillit til erlends samkeppnislegs aðhalds

Eins og fram hefur komið metur Samkeppniseftirlitið áhrif erlends samkeppnislegs aðhalds við rannsókn samruna. Ofmeti eftirlitið erlent samkeppnislegt aðhald getur það leitt til þess að of margir samkeppnishamlandi samrunar nái fram að ganga. Sé aðhaldið vanmetið getur það leitt til þess að hlutast sé til um samruna sem ekki skaða samkeppni. Því er mikilvægt að Samkeppniseftirlitið ofmeti hvorki né vanmeti það erlenda samkeppnislega aðhald sem er til staðar í hverju máli hverju sinni. Það þjónar best hagsmunum íslenskra neytenda og fyrirtækja.

Fyrirvari: Skoðanir eru höfundar og þurfa ekki nauðsynlega að endurspegla afstöðu eða stefnu Samkeppniseftirlitsins.

Höfundur er Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins.

Pistill birtist í Fréttablaðinu þriðjudaginn 27. mars 2019

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Ársskýrsla 2021

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Skynjun stjórnenda

Texti

  • 23. júlí 2025
  • NULL

ICA‘s investigation of Eimskip‘s collusion violations concluded with a settlement

The Icelandic Competition Authority (ICA) has been investigating possible infringements of Article 10 of the Icelandic Competition Law and Article 53 ...
  • 23. júlí 2025
  • NULL

Samkeppnisvísar – Alþjóðlegur samanburður

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Merger of Norðlenska matborðið ehf., Kjarnafæði hf. and SAH afurðir ehf

The Icelandic Competition Authority examined the merger of Norðlenska, Kjarnafæði and SAH afurðir. It was the Authority’s assessment that the merger c...
  • 23. júlí 2025
  • NULL

Samkeppnin eftir heimsfaraldur

Sókn er besta vörnin – verndarstefna skaðar atvinnulíf og almenning

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Samstarf eða samkeppni? Uppbygging fjarskiptainnviða. Í þessu riti er birt minnisblað Samkeppniseftirlitsins um samstarf keppinauta við uppbyggingu fjarskiptainnviða, dags. 18. febrúar 2020

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Umfjöllun Samkeppniseftirlitsins um RÚV á auglýsingamarkaði

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

ICA thesis competition

ss

  • 23. júlí 2025
  • NULL
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.