Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. NULL

Virk samkeppni er kjaramál

24. apríl 2019
snowcap mountain

Á liðnum vikum og mánuðum hefur umræðan á Íslandi að töluverðu leyti snúið að því hversu mikið svigrúm sé til launahækkana. Samtök atvinnulífsins og nokkur stéttarfélög, m.a. VR og Efling, hafa komist að samkomulagi sem kveður m.a. á um 17 þúsund króna hækkun á kauptaxta og föstum mánaðarlaunum fyrir dagvinnu frá og með 1. apríl sl. Markmið verkalýðsfélaga er m.a. að efla og styðja hag sinna félagsmanna með því að semja um kaup og kjör. Í tengslum við kjarasamningana hefur hins vegar minna verið fjallað um það hvernig virk samkeppni getur bætt hag launafólks.

Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands má ætla að einstæðir foreldrar hafi verið með að meðaltali 581 þúsund krónur í heildarlaun í desember 2018. Hækkun launa um 17 þúsund krónur á mánuði ætti því að skila einstaklingum í þessum hópi tæplega 10 þúsund króna aukningu ráðstöfunartekna. Í sama mánuði námu mánaðarleg útgjöld einstæðra foreldra til matar og drykkjar að meðaltali um 56 þúsund krónum, eða um 14% af ráðstöfunartekjum. Af því má ráða að verðlag á mat og drykkjarvöru hafi umtalsverð áhrif á hag launafólks og að hversu miklu leyti umsamdar launahækkanir skili sér í veski þess.

Stuðlar að auknum kaupmætti
Þekkt er að virk samkeppni stuðlar að lægra verði, betri gæðum auk meira vöruúrvals og nýsköpunar á mörkuðum. Samkeppnishindranir hafa þveröfug áhrif og skaða þar með neytendur. Fræðimenn og samkeppnisyfirvöld víða um heim, auk ýmissa alþjóðastofnana, hafa rannsakað ítarlega áhrif samkeppnishindrana, meðal annars áhrif samráðs og samkeppnishamlandi regluverks á verðlag.

Rannsókn sem unnin var fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins árið 2009, og byggði á samantekt rannsókna á áhrifum verðsamráðs, leiddi meðal annars í ljós að verðhækkanir vegna samráðs voru á bilinu 10-40% í 7 af hverjum 10 tilvikum og námu að meðaltali um 20%. Það að halda mörkuðum opnum fyrir samkeppni getur einnig haft umtalsverð áhrif. Verð á áströlskum fjarskiptamarkaði lækkaði til að mynda um 17-30% á árabilinu 1996 til 2003, á sama tíma og stjórnvöld réðust þar í aðgerðir til þess að auka samkeppni. Hér á landi lækkaði verð á flugi um allt að 50% með aukinni samkeppni frá fyrst Iceland Express og síðar WOW air.

Samkeppnishindranir og kjarabætur
Séu skaðleg áhrif samráðs borin saman við þann kjarasamning sem nýlega var undirritaður má sjá að 20% hækkun á matar- og drykkjarútgjöldum einstæðra foreldra myndi leiða til 11 þúsund króna útgjaldaaukningar en eins og fram hefur komið tryggir kjarasamningurinn um 10 þúsund króna hækkun á ráðstöfunartekjum á fyrsta árinu. Með öðrum orðum myndi skaði þessa hóps vera meiri en vænt kaupmáttaraukning vegna nýgerðra kjarasamninga ef ekki væri tryggt að virk samkeppni ríkti í sölu á mat- og drykkjarvörum.

Þessu til viðbótar má ætla að slíkar hækkanir myndu leiða til 2,3% hækkunar á vísitölu neysluverðs. Sú hækkun myndi hafa þær afleiðingar að 25 milljón króna verðtryggt lán hækkaði um 750 þúsund krónur og verðtryggðar skuldir íslenskra heimila hækkuðu um 30 milljarða.

Hér eru mat- og drykkjarvörur einungis nefndar sem dæmi en sambærileg áhrif mætti finna á flestum öðrum mikilvægum mörkuðum.

Ef nýlega umsamdar launahækkanir eiga að skila sér til launafólks er mikilvægt að virk samkeppni ríki á íslenskum neytendamörkuðum. Tjón neytenda vegna samkeppnishindrana getur verið umtalsvert og því þurfa verkalýðshreyfingin, atvinnulífið, stjórnvöld og samtök neytenda að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja virka samkeppni til hagsbóta fyrir neytendur og íslenskt atvinnulíf.

Höfundur er Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins.

Pistill birtist í Fréttablaðinu 17.4.2019

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Ársskýrsla 2021

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Skynjun stjórnenda

Texti

  • 23. júlí 2025
  • NULL

ICA‘s investigation of Eimskip‘s collusion violations concluded with a settlement

The Icelandic Competition Authority (ICA) has been investigating possible infringements of Article 10 of the Icelandic Competition Law and Article 53 ...
  • 23. júlí 2025
  • NULL

Samkeppnisvísar – Alþjóðlegur samanburður

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Merger of Norðlenska matborðið ehf., Kjarnafæði hf. and SAH afurðir ehf

The Icelandic Competition Authority examined the merger of Norðlenska, Kjarnafæði and SAH afurðir. It was the Authority’s assessment that the merger c...
  • 23. júlí 2025
  • NULL

Samkeppnin eftir heimsfaraldur

Sókn er besta vörnin – verndarstefna skaðar atvinnulíf og almenning

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Samstarf eða samkeppni? Uppbygging fjarskiptainnviða. Í þessu riti er birt minnisblað Samkeppniseftirlitsins um samstarf keppinauta við uppbyggingu fjarskiptainnviða, dags. 18. febrúar 2020

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

Umfjöllun Samkeppniseftirlitsins um RÚV á auglýsingamarkaði

NULL

  • 23. júlí 2025
  • NULL

ICA thesis competition

ss

  • 23. júlí 2025
  • NULL
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.