Samkeppni Logo

Hagar bundnir skilyrðum vegna kaupa á hlutafé í Klasa ehf.

10. júní 2022

Hagar hafa í dag gert sátt
við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa félagsins á eignarhlut í
fasteignarþróunarfélaginu Klasa ehf. Hin tilkynntu kaup varða kaup Regins og
Haga á samtals 66% eignarhlut í fasteignarþróunarfélaginu.

Hagar hafa mjög sterka stöðu
á dagvörumarkaði. Taldi Samkeppniseftirlitið að með kaupunum á eignarhlut í
fasteignarþróunarfélaginu Klasa kynni sú staða að styrkjast enn frekar, en
aðgangur að ákjósanlegum lóðum til reksturs dagvöruverslana getur haft mikil
áhrif á samkeppni á þessu sviði.

Vegna
þessa hafa Hagar gert sátt við Samkeppniseftirlitið. Í sáttinni er tekið fram
að Hagar hafi ekki kauprétt / forkaupsrétt að þeim eignum sem þróaðar verða í
samstarfi við Klasa. Jafnframt skuldbinda Hagar sig til að tilkynna
Samkeppniseftirlitinu um alla samninga um kaup eða leigu Haga á eignum undir
dagvöruverslanir sem verða þróaðar og byggðar undir stjórn Klasa eða Regins.
Með því móti er tryggt að Samkeppniseftirlitið hafi yfirsýn yfir áhrif
samrunans á stöðu Haga á dagvörumarkaði en ekki liggur fyrir með nákvæmum hætti
hvaða eignir verða þróaðar á grunni samrunans.

Sáttin er aðgengileg hér. Ákvörðun, þar sem nánari
grein er gerð fyrir forsendum sáttarinnar, verður birt á næstunni.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.