Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppni og hið opinbera – að miklu er að vinna fyrir íslenskt atvinnulíf og almenning

27. febrúar 2026

Samkeppniseftirlitið vill færa öllum þeim sem tóku þátt í vinnustofum og ráðstefnu um samkeppni og hið opinbera dagana 17. – 19. febrúar kærar þakkir fyrir frábæra þátttöku og uppbyggilegar umræður. Í heild telst eftirlitinu til að á þriðja hundrað manns hafi tekið þátt í einhverjum fundanna, annað hvort á staðnum eða í streymi. Þá tóku fulltrúar nær allra ráðuneyta og innkaupastofnanna á vegum hins opinbera þátt.

Sjá fréttatilkynningu vegna viðburðanna hér.

Ráðstefna um samkeppni og hið opinbera

Þann 19. febrúar var haldin opin ráðstefna þar sem fjallað var um samkeppni í opinberum útboðum, áhrif reglubyrði og leiðir til að efla skilvirkni og auka verðmætasköpun fyrir samfélagið. Vel á annað hundrað manns tóku þátt í fundinum, þ. á m. í streymi.

Hér má nálgast upptöku af opna fundinum (frá 14. mínútu). Hér má einnig nálgast glærukynningar af opna fundinum.

Sérfræðingar OECD höfðu framsögu, ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins opnaði fundinn og fjármála- og efnahagsráðherra tók þátt í pallborðsumræðum, ásamt erlendum og innlendum sérfræðingum og fulltrúum úr stjórnsýslu og atvinnulífi.

Á ráðstefnunni var m.a. fjallað um mikilvægi þess að vinna gegn samkeppnishindrunum í regluverki með betri samvinnu og skipulagningu innan stjórnsýslunnar. Jafnframt var rætt um mikilvægi þess að samkeppnisyfirvöld og stofnanir ríkis og sveitarfélaga eigi virkt samtal um leiðir til að tryggja samkeppni í opinberum innkaupum. Í því samhengi er afar mikilvægt að þessir aðilar geti deilt með hvor öðrum mikilvægum upplýsingum, s.s. um þátttöku og niðurstöður opinberra innkaupa.

Í aðdraganda ráðstefnunnar voru haldnar vinnustofur sem gerð er grein fyrir hér að neðan. Í tengslum við fundina voru einnig tekin viðtöl við þrjá valinkunna aðila sem koma að þessum viðfangsefnum hver úr inni áttinni:

  • Viðtal við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekanda.
  • Viðtal við Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóra Nýja Landspítalans ohf.
  • Viðtal við Magnús Þór Kristjánsson, verkefnastjóra hjá Samkeppniseftirlitinu.

Hér má nálgast glærukynningu af fundinum:

Glærur um samkeppnismat 1 og 2

Glærur um opinber innkaup 3

Vinnustofa um samkeppnismat

Vinnustofa um samkeppnismat á regluverki var haldin þann 17. febrúar. Var vinnustofan vel sótt af nær öllum ráðuneytum og lykilstofnunum, en um 50 manns tóku þátt. Sérfræðingar OECD kynntu aðferðafræði samkeppnismats og sýndu fram á að ávinningur af samkeppnismati á reglum og stjórnvaldsfyrirmælum sé umtalsverður. Felst ávinningurinn einkum í minni reglubyrði atvinnulífs og einfaldari ferlum og framkvæmd stjórnvalda.

Í  skýrslu OECD frá 2025, um efnahagsaðstæður á Íslandi, kemur fram að með því að draga úr íþyngjandi reglu- og stjórnsýslubyrði í víðari skilningi mætti hækka verga landsframleiðslu á Íslandi um u.þ.b. 6,5% á 10 ára tímabili. Þá var það mat OECD í skýrslu sinni frá 2020 um samkeppnismat í byggingariðnaði og ferðaþjónustu að ef þær tillögur til einföldunar regluverks sem lagðar voru til yrðu framkvæmdar myndi það geta leitt til aukinnar landsframleiðslu sem nemur um 1% af vergri landsframleiðslu.

Hér má nálgast glærukynningu af vinnustofunni:

Glærur frá OECD um samkeppnismat 1

Glærur um samkeppnismat og ísland 2

Vinnustofa um opinber innkaup

Vinnustofa um opinber innkaup, hönnun útboða og varnir gegn samráði í útboðum var haldin 18. febrúar. Hana sóttu um 60 manns, frá öllum stærri innkaupaaðilum ríkisins og allmörgum sveitarfélögum, en hægt var að fylgjast með hluta vinnustofunnar á netinu.

Á fundinum kynnti sérfræðingur OECD nýja íslenska útgáfu af leiðbeiningum OECD um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum og hönnun útboða.

Þau sem sinna opinberum innkaupum fyrir ríki og sveitarfélög eru hvött til að láta Samkeppniseftirlitið vita um hvers konar vísbendingar um ólögmætt samráð í útboðum.

Reynslan sýnir að ávinningur af því að uppræta samráð, ásamt bættri hönnun útboða með það markmiði að fjölga mögulegum bjóðendum, getur skilað samfélaginu umtalsverðum ávinningi. Rannsóknir sem OECD vitnar til sýna að aukinn kostnaður vegna samráðs í opinberum innkaupum getur verið 20% eða hærri.

Hér má nálgast glærukynningar frá vinnustofunni:

Glærur um innlent umhverfi 1

Glærur um rauð flögg í útboðsferli 2

Glærur um hönnun útboða 3

Glærur um útilokun bjóðenda í útboðum 4 og 5

Fundir um skýrslu OECD um samkeppnismat í byggingariðnaði og ferðaþjónustu

Í tengslum við framangreinda fundi stóð Samkeppniseftirlitið jafnframt fyrir fundum með ráðuneytum og stofnunum á vettvangi ferðaþjónustu og byggingariðnaðar, ásamt með sérfræðingum OECD, þar sem fjallað var um það hvort og með hvaða hætti tillögum OECD hefur verið hrint í framkvæmd.

Af fundunum er ljóst að ýmsar tillögur OECD, sem enn á eftir að hrinda í framkvæmd, eru til þess fallnar að draga úr byggingarkostnaði og styrkja ferðaþjónustu.

Niðurlag

Samkeppniseftirlitið hefur í hyggju að fylgja þessari umræðu frekar eftir. Að mati eftirlitsins er afar mikilvægt að nýta þau tækifæri sem fjallað var um á ráðstefnunni og hyggst eftirlitið eiga áfram í opnu samtali við viðkomandi stjórnvöld á þessu sviði með von um jákvæð viðbrögð.

Kærar þakkir.

 

 

 

 

 

 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.