
Hér á landi hafa stjórnvöld heimilað starfsemi bæði opinberrar og einkarekinnar heilsugæslu. Til þess heilsugæslurnar hafi hvata og getu til að bjóða sem besta þjónustu til allra landsmanna, er mikilvægt að þær búi allar við sambærileg starfsskilyrði. Það hefur ekki verið tryggt.
Með þetta í huga hefur SKE á liðnum árum beint tilmælum til heilbrigðisyfirvalda um að jafna stöðu einkarekinnar og opinberrar heilsugæslu. Meðal annars þurfi að jafna rekstrarskilyrði þeirra, vinna gegn mismunun við verðlagningu rannsóknarþjónustu, setja skýran ramma um samskipti og samninga opinberra og einkarekinna stöðva og jafna skattalega meðferð. Þá þurfi að jafna stöðuna með skýrum reglum um miðlæga þjónustu, sambærilegu eftirliti og jafnræði í sérnámi lækna.
Í nóvember síðastliðnum áréttaði Samkeppniseftirlitið fyrri tilmæli. Tilmælin, ásamt frétt á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins, eru aðgengileg hér.
Heilbrigðisráðuneytið svaraði erindi Samkeppniseftirlitsins með bréfi, dags. 31. desember 2025, og gerði grein fyrir tilteknum breytingum. Mikilvægt er að þær nái fram að ganga og að áfram verði haldið á sömu braut.
Svar ráðuneytisins við tilmælum eftirlitsins
Í svari ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið hyggist í vinnu sinni gera tiltekna breytingar sem ætlað er að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna heilsugæslustöðva gagnvart opinberum stöðvum, að teknu tilliti til ólíks rekstrarumhverfis þeirra.
Nánar tiltekið gerði ráðuneytið grein fyrir eftirfarandi breytingum:
Ráðuneytið tilkynnti að allar heilsugæslustöðvar myndu frá og með 1. janúar 2026 greiða sama einingaverð fyrir rannsóknarþjónustu Landspítalans. Með þessu er brugðist við áralöngu misræmi þar sem einkareknar stöðvar greiddu hærra verð en opinberar.
Ráðuneytið vinnur að breytingum á miðlægri þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Þar á meðal eru:
Unnið sé að nýrri reglugerð um heilsugæslu sem mun skýra kröfur til heilsugæslustöðva, óháð rekstrarformi. Þannig verði brugðist við ábendingum um að opinberar stöðvar hafi ekki sætt sambærilegu eftirliti og einkareknar.
Ráðuneytið staðfestir að fjármögnun sérnámslækna sé nú dreift jafnt óháð rekstrarformi. Þá verði í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands og fjármálaráðuneytið skoðað hvort endurgreiðsla virðisaukaskatts geti verið útfærð með öðrum hætti til að tryggja meira hlutleysi í rekstri.
Afstaða Samkeppniseftirlitsins og frekari tilmæli
Tilmæli Samkeppniseftirlitsins voru upphaflega sett fram í október 2017 og hafði aðeins að takmörkuðu leyti verið brugðist við þeim. Samkvæmt svari ráðuneytisins við nýjustu tilmælum eftirlitsins hafa nú verið gerðar mikilvægar breytingar hvað varðar rannsóknarkostnað. Er það mjög jákvætt.
Jafnframt eru boðaðar breytingar á miðlægri þjónustu. Að mati eftirlitsins er mikilvægt að þessi miðlæga þjónusta sé sett upp með það markmiði að þjónusta alla þætti heilbrigðiskerfisins með sambærilegum og sanngjörnum hætti og að einstaka aðilum sé ekki hyglað á kostnað annarra.
Samkeppniseftirlitið hvetur ráðuneytið til þess að ljúka þeim verkefnum sem lýst er í svörum þess. Jafnframt mælist eftirlitið til þess að fjármögnunarmódel heilsugæslu og annað umhverfi rekstursins verði reglulega tekið til skoðunar með það í huga að tryggja jafna samkeppnisstöðu, að teknu tilliti til allra þátta.
Nánar um tilmæli Samkeppniseftirlitsins
Í október 2017 beindi Samkeppniseftirlitið tilmælum til heilbrigðisráðuneytisins um að jafna starfsumhverfi einkarekinna og opinberra heilsugæslustöðva. Tilefni tilmælanna voru athugasemdir sem höfðu borist frá einkareknum heilsugæslustöðvum um samkeppnislega mismunun. Í bréfinu til ráðuneytisins var jafnframt fjallað um þær breytingar sem höfðu orðið á heilsugæslukerfinu á höfuðborgarsvæðinu og mikilvægi þess að notendur heilsugæslustöðva geti flutt sig á milli heilsugæslustöðva óháð rekstrarformi þeirra og þannig skapað hvata fyrir stöðvarnar til að bæta þjónustu, skilvirkni og hagkvæmni í kerfinu.
Beindi Samkeppniseftirlitið eftirfarandi tilmælum til ráðherra:
Í nóvember 2025 áréttaði Samkeppniseftirlitið tilmælin og taldi sérstaklega brýnt að jafna mismunun varðandi rannsóknarkostnað auk eftirfarandi:
"*" gefur til kynna skyldusvið