
Með áliti Samkeppniseftirlitsins
nr. 2/2024 sem birt er í dag beinir eftirlitið þeim tilmælum til
heilbrigðisráðherra og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) að gripið verði til aðgerða
til að stuðla að bættri samkeppni í myndgreiningum utan sjúkrahúsa. Álit þetta
er birt vegna kvörtunar Intuens Segulómunar ehf. (Intuens) til
Samkeppniseftirlitsins um að fyrirtækinu hafi verið synjað um samning um greiðsluþátttöku
hjá SÍ sem hindrar innkomu þess á markað fyrir myndgreiningar.
Nánar tiltekið fela tilmælin í
sér að heilbrigðisyfirvöld beiti sér fyrir því að auka samkeppni með því að greiða
innkomu nýrra aðila inn á markaðinn, en með virkari samkeppni er stuðlað að því
að notendur fái betri þjónustu á sem hagstæðustu verði, til hagsbóta fyrir
almenning og ríkissjóð, sem stendur undir verulegum hluta kostnaðarins í gegnum
greiðsluþátttöku SÍ.
Einnig að þegar í stað verði
tryggt að Intuens njóti jafnræðis gagnvart starfandi fyrirtækjum á markaðnum um
samning um greiðsluþátttöku. Samkeppniseftirlitið telur að stjórnvöld hafi ekki
sýnt fram á málefnalegar ástæður fyrir því að hafna samningi við Intuens um
greiðsluþátttöku á sama tíma og eldri samningar hafa verið framlengdir gagnvart
starfandi fyrirtækjum.
Þá er því beint til
heilbrigðisyfirvalda að útboð á almennri myndgreiningarþjónustu sem veitt er
utan sjúkrahúsa eða að ákvörðun um innkaup á slíkri þjónustu hafi þau skýru
markmið að efla samkeppni á markaðnum, en í því felst m.a. að ný fyrirtæki sem
uppfylla málefnaleg skilyrði og bjóða samkeppnishæft verð og þjónustu eigi sem
greiðasta leið inn á markaðinn.
Samkeppniseftirlitið telur það
hafa mikla þýðingu að markaður fyrir myndgreiningar hefur verið í örum vexti á
undanförnum árum án þess þó að keppinautum hafi fjölgað. Þar starfa nú þrjú
fyrirtæki og þar af tvö með verulega háa markaðshlutdeild. Á sama tíma hafa
heilbrigðisyfirvöld bent á að þjónusta núverandi fyrirtækja sé kostnaðarsöm og sum
hver skilað eigendum sínum miklum arði. Við slíkar aðstæður ætti það að vera
keppikefli yfirvalda að greiða götu nýrra keppinauta til að koma inn á
markaðinn og efla samkeppni til að ná fram hagstæðara verði og betri þjónustu.
Bakgrunnsupplýsingar:
Samkeppniseftirlitið fjallaði um markað
fyrir myndgreiningar í ákvörðun nr. 35/2020 þar sem til skoðunar var samruni
Læknisfræðilegrar myndgreiningar ehf. og Íslenskrar myndgreiningar ehf. Samruninn
var ógiltur enda hefði hlutdeild sameinaðs fyrirtækis orðið um 90-95% og aðeins
einn annar keppinautur starfandi. Niðurstaðan
fól í sér að samrunaaðilar væru mikilvægir og nánir keppinautar með mjög sterka
stöðu og að samruninn myndi eyða samkeppnislegu aðhaldi sem aðilar byggju við
frá hvorum öðrum. Átti það við hvort sem um væri að ræða samkeppni í gæðum,
þjónustu, að laða til sín hæft starfsfólki og síðast en ekki síst samkeppni í
að veita íslensku heilbrigðiskerfi hvað besta þjónustu fyrir hagkvæmt verð.
Samruninn var því ógiltur.
Ákvörðunin var staðfest með
úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 3/2020 og síðar með dómi
héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-4662/2021 . Dómur héraðsdóms var svo
staðfestur nýlega í Landsrétti eða þann 3. maí 2024 með dómi í máli nr. 165/2023
með vísan til forsendna að mestu leyti.
"*" gefur til kynna skyldusvið