
Í bakþönkum Fréttablaðsins í dag, undir fyrirsögninni „ekki svo flókið“, kemur fram sá skilningur höfundar að Hagar og Olís hafi þurft að bíða í 14 mánuði upp á von og óvon á meðan Samkeppniseftirlitið geri upp hug sinn um samruna fyrirtækjanna. Þessu sé öðruvísi farið í Bandaríkjunum, en þar í landi hafi samkeppnisyfirvöld samþykkt 1.500 milljarða króna risakaup Amazon á Whole Foods á aðeins tveimur mánuðum.
Við þessa lýsingu er a.m.k. tvennt að athuga:
Í tilviki samruna N1 og Festi var sama staða uppi en N1 dró samrunatilkynningu vegna þess samruna til baka á lokadegi þeirrar rannsóknar þann 17. apríl sl. Sjá fréttvegna afturköllunarinnar.
Í pistlinum er tekið sem dæmi að það hafi aðeins tekið bandarísk samkeppnisyfirvöld tvo mánuði að samþykkja kaup Amazon á Whole Foods „matvörurisanum“. Hlutdeild Whole Foods á bandaríska dagvörumarkaðnum var 1,4% og Amazon rak engar matvöruverslanir. Sökum þessa töldu bandarísk samkeppnisyfirvöld þennan samruna ekki flókin í samkeppnislegum skilningi og var hann heimilaður á fyrsta fasa.
Ef samrunamál eru flókin í samkeppnislegum skilningi taka þau lengri tíma í Bandaríkjunum. Í október 2016 var tilkynnt um samruna AT&T og Time Warner. Niðurstaða í því máli lá fyrir 12. júní 2018.
"*" gefur til kynna skyldusvið