
Forsaga
málsins er sú að með ákvörðun á árinu 2015 heimilaði Samkeppniseftirlitið Vodafone
og Nova að hafa með sér tiltekið samstarf um rekstur dreifikerfis fyrir
farsímaþjónustu. Forsenda þessa var að fyrirtækin féllust á að hlíta skilyrðum
sem vinna eiga gegn því að samstarf þeirra um rekstur dreifikerfisins raski
samkeppni á mörkuðum fyrir farsímaþjónustu á bæði heildsölustigi og
smásölustigi. Þá var skilyrðunum einnig ætlað að skapa fleiri valkosti og þar
með aukna möguleika fyrir núverandi og nýja þjónustuaðila á markaði fyrir
farsímaþjónustu á smásölustigi og stuðla þannig að frekari samkeppni á
viðkomandi mörkuðum. Einnig er skapað tækifæri til betri nýtingar á
fjárfestingum í undirliggjandi kerfum farsímaþjónustu.
Síminn
var ósáttur við ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og skaut henni til
áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti hana. Höfðaði Síminn í kjölfarið
mál fyrir dómstólum og kvað héraðsdómur upp dóm í því máli í dag.
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins í alla staði
vönduð og ítarleg
Í málinu byggði Síminn meðal annars á því að
Samkeppniseftirlitið hafi ekki rannsakað málið með fullnægjandi hætti og að
setja hafi átt samstarfinu ítarlegri skilyrði. Héraðsdómur hafnar þessu. Er það
niðurstaða héraðsdóms að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi í alla staði
verið vönduð og ítarleg. Er það niðurstaða héraðsdóms að engin ástæða sé til að
draga í efa það mat Samkeppniseftirlitsins að skilyrðin hafi verið fullnægjandi
með tilliti til ákvæða samkeppnislaga.
Matsgerð dómkvaddra matsmanna hróflar ekki við
mati Samkeppniseftirlitsins
Undir rekstri málsins aflaði Síminn matsgerðar
dómkvaddra matsmanna til að styðja málatilbúnað sinn. Er það niðurstaða
héraðsdóms að matsgerðin hrófli ekki við mati Samkeppniseftirlitsins í málinu.
Þá hafnar héraðsdómur að líta til skýrslu erlends ráðgjafarfyrirtækis sem
Síminn aflaði af þeirri ástæðu að skýrslunnar hafi verið aflað einhliða.
Úrskurður áfrýjunarnefndar byggður á réttum
forsendum
Í málinu byggði Síminn meðal annars á því að
úrskurður áfrýjunarnefndar væri byggður á röngum forsendum. Héraðsdómur hafnar
þessu og tekur fram að orðalag í úrskurðinum verði ekki skilið með svo þröngum
skilningi sem Síminn geri í málatilbúnaði sínum.
"*" gefur til kynna skyldusvið