Samrunamál í sumar – tafir og ný mál
Undanfarið hefur samrunatilkynningum, boðun væntanlegra tilkynninga, og fyrirspurnum um forviðræður vegna samruna fyrirtækja fjölgað hjá Samkeppniseftirlitinu.
Vegna anna, sumarleyfa starfsmanna og ófullnægjandi fjárheimilda er fyrirsjáanlegt að afgreiðsla og yfirferð nýrra samrunatilkynninga muni tefjast hjá Samkeppniseftirlitinu í sumar.
Útlit er fyrir að þessi staða verði uppi fram í miðjan ágúst. Hið sama gildir um samrunamál á forviðræðustigi. Þannig er ólíklegt Samkeppniseftirlitið geti orðið við óskum um nýjar forviðræður eða framhald forviðræðna vegna samruna á sama tímabili.
Samkeppniseftirlitið telur rétt að gera fyrirtækjum og ráðgjöfum þeirra grein fyrir þessu svo viðkomandi geti tekið tillit til framangreinds og gert viðeigandi ráðstafanir.
Framangreint hefur ekki áhrif á yfirstandandi rannsóknir á lögbundnum tímafrestum. Samrunamál og stöðu þeirra má sjá hér .