16.6.2025

Samruni Orkunnar og Samkaupa – umsagnarferli

Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar samruna Orkunnar IS ehf. (Lyfjaval, Löður o.fl., dótturfélag Skel fjárfestingafélags) og Samkaupa hf. en fullnægjandi samrunatilkynning barst 10. júní sl.

Orkan starfar aðallega á mörkuðum fyrir eldsneyti, lyfsölu o.fl. en Samkaup á dagvörumarkaði og rekur m.a. verslanir Nettó, Kjörbúðarinnar og Krambúðarinnar. Samkeppniseftirlitið hafði auk þess áður samþykkt samruna Samkaupa og verslana Prís, Heimkaupa og Extra í gegnum félagið Atlögu ehf.

Samrunatilkynning Orkunnar vegna yfirtöku á Samkaupum, þar sem fyrirtækin lýsa samrunanum og samkeppni frá þeirra sjónarhorni, er aðgengileg hér .

Öllum hagaðilum og öðrum áhugasömum er hér með veitt tækifæri til þess að koma á framfæri sjónarmiðum vegna samrunans, svo sem um möguleg áhrif hans á samkeppni, aðstæður á viðkomandi mörkuðum, og um önnur atriði sem fyrirtækin fjalla um í samrunaskrá.

Umsagnir sendist á gogn@samkeppni.is og vegna lögbundinna tímafresta í samrunamálum skulu þær berast eigi síðar en miðvikudaginn 25. júní nk.

Innihaldi umsagnir trúnaðarupplýsingar er mikilvægt að taka slíkt fram og senda einnig eintak umsagnar án trúnaðarupplýsinga.

Samrunaaðilar óskuðu eftir undanþáguheimild til þess að framkvæma samrunann á meðan hann er til rannsóknar. Samkeppniseftirlitið veitti þá heimild í dag hinn 16. júní.