Samkeppni Logo

Starf aðalhagfræðings laust til umsóknar

12. mars 2026

Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir umsóknum um starf aðalhagfræðings. Valur Þráinsson, sem starfað hefur hjá eftirlitinu frá árinu 2010 og gengt starfi aðalhagfræðings frá haustinu 2018, hefur ákveðið að hætta störfum síðar á árinu.

Umsóknarfrestur er til 31. mars næstkomandi.

Auglýsing vegna starfsins er aðgengileg hér.

Ensk útgáfa auglýsingarinnar er aðgengileg hér.

Nánar um starf aðalhagfræðings

Aðalhagfræðingur ber faglega ábyrgð á hagrænum rannsóknum og greiningum á vettvangi Samkeppniseftirlitsins og sér til þess að þær aðferðir sem beitt er séu vandaðar og byggi á traustum hagfræðilegum grunni. Með það að markmiði stuðlar hann að uppbyggingu og þróun hagfræðilegrar þekkingar innan eftirlitsins og veitir hagfræðingum faglega leiðsögn.

Aðalhagfræðingur er virkur þátttakandi í forgangsröðun verkefna, verkstjórn og ákvörðunum um efnislega niðurstöðu athugana. Jafnframt er hann í samskiptum og samstarfi við fræðasamfélagið, innanlands og utan, og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi, m.a. á vettvangi EES/ESB, OECD og norrænna eftirlita.

Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar öflugur hópur hagfræðinga. Sem aðalhagfræðingur hefur Valur Þráinsson haft forystu um að efla hagfræðilegt starf Samkeppniseftirlitsins og styrkt viðvarandi og öflugt samstarf við fræðasamfélagið og systureftirlit í Evrópu. Framundan eru fjölmörg tækifæri til frekari eflingar.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.