Samkeppni Logo

Samruni Ferro Zink ehf. og Metal ehf.

Reifun

Í ákvörðun þessari er fjallað um samruna fyrirtækjanna Ferro Zink ehf. og Metal ehf. Samrunaaðilar eru meðal fárra fyrirtækja hérlendis sem sérhæfa sig í innflutningi og sölu á smíðamálmum með breiðu vöruúrvali málma af margvíslegum stærðum og gerðum. Með því þjónusta báðir samrunaaðilar blikk-, málm- og vélsmiðjur og ýmis iðnfyrirtæki.

Samkeppniseftirlitið telur líklegt að samruninn myndi leiða til hærra verðs og/eða lakari þjónustu fyrir viðskiptamenn. Þá höfðu samrunaaðilar ekki sýnt fram á að mögulegur ávinningur af samrunanum myndi vega upp á móti þessum skaðlegu áhrifum á markaði og ekki heldur að hann myndi skila sér til neytenda.

Er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn myndi raska samkeppni og því er hann andstæður samkeppnislögum.

Ákvarðanir
Málsnúmer

10 / 2026

Dagsetning
17. apríl 2026

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.