Með samrunaákvörðun þessari er tekin afstaða til kaupa Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Samrunaaðilar starfa á markaði fyrir útleigu atvinnuhúsnæðis til ótengdra þriðju aðila. Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum, umsögnum markaðsaðila og rannsókn Samkeppniseftirlitsins liggja ekki fyrir vísbendingar um að markaðsráðandi staða verði til eða styrkist eða að samkeppni sé raskað að öðru leyti með umtalsverðum hætti svo íhlutunar sé þörf. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er að ekki séu forsendur til að hafast frekar að í málinu og lýkur því á fyrsta fasa.
13 / 2026
FÍ fasteignafélag slhf.
Kaldalón hf.
Fasteignir
Samrunamál
"*" gefur til kynna skyldusvið