Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun nr. 33/2023 lokið rannsókn á brotum Samskipa á samkeppnislögum. Það er niðurstaða eftirlitsins að Samskip hafi með alvarlegum hætti brotið gegn banni 10. gr. samkeppnislaga og 1. mgr. 53. gr. EES-samningsins, með ólögmætu samráði við Eimskip.
Þá er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Samskip hafi við rannsókn málsins brotið gegn 19. gr. samkeppnislaga með rangri, villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf og gagnaafhendingu.
Samanlagðar stjórnvaldsektir vegna framangreindra brota nema 4,2 milljörðum króna.
Jafnframt er lagt fyrir Samskip að grípa til tiltekinna aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir frekari brot og efla samkeppni.
Hér er hlekkur á upplýsingasíðu málsins. Þar má nálgast öll bindi ákvörðunarinnar auk annarra upplýsinga.
33 / 2023
"*" gefur til kynna skyldusvið