Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið kærir frávísun héraðsdóms í máli Samskipa til Landsréttar

30. mars 2026

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur í dag vísað máli Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum Holding B.V. o.fl. frá dóminum. Samkeppniseftirlitið höfðaði málið meðal annars í því skyni að fá hnekkt þeirri niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að lækka fjárhæð stjórnvaldssektar sem Samskipum var gert að greiða vegna ólögmæts samráðs við Eimskip úr 4.200 milljónum króna í 2.400 milljónir króna.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ólögmætu samráði fyrirtækjanna var fordæmalaus að umfangi, en hún tók til allra helstu sviða í starfsemi fyrirtækjanna, þ.e. sjóflutninga, landflutninga og flutningsmiðlunar. Náði rannsóknin yfir háttsemi fyrirtækjanna frá 2008 til og með 2013 en jafnframt til atvika fyrir það tímabil og fól í sér skoðun á gríðarlegu magni gagna. Endurspeglast það í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þar sem niðurstöður um ólögmætt samráð fyrirtækjanna eru rökstuddar á yfir þrjú þúsund blaðsíðum.

Með málsókn sinni leitar Samkeppniseftirlitið eftir því að fá stjórnvaldssekt Samskipa færða í fyrra horf. Ástæða þessa er að Samkeppniseftirlitið telur að sektin sem áfrýjunarnefnd ákvað sé ekki í samræmi við hin alvarlegu og langvarandi brot Samskipa. Í úrskurði héraðsdóms er vísað til reglna dómstólasýslunnar nr. 5/2025 um hámarkslengd stefnu og greinargerða í einkamálum o.fl. og tekið fram að reglurnar feli í sér viðmið sem viðbúið sé að lögmenn og dómarar líti til. Í úrskurðinum er fundið að því að stefna Samkeppnisetirlitsins í málinu sé 135 blaðsíður að lengd og talið að hún feli í sér skriflegan málflutning í andstöðu við bæði meginreglu einkamálaréttarfars um munnlega málsmeðferð og ákvæði laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Telur dómurinn að svo löng stefna geri Samskipum nær ómögulegt að skila greinargerð sem uppfylli skilyrði laganna.

Samkeppniseftirlitið telur að sakarefni málsins sé fordæmalaust að umfangi og að nauðsynlegt hafi verið að reifa málið með fullnægjandi hætti í stefnu svo það teldist ekki vanreifað. Samkeppniseftirlitð hyggst því kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.