Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Hæstiréttur staðfestir niðurstöðu Landsréttar um að sýkna Samkeppniseftirlitið af kröfu Samskipa

7. maí 2025

Með dómi Hæstaréttar Íslands uppkveðnum í dag var dómur Landsréttar frá 26. september 2024 staðfestur. Í dómi Landsréttar var Samkeppniseftirlitið sýknað af kröfu Samskipa hf. um að ógiltur yrði úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála þar sem kæru fyrirtækisins var vísað frá nefndinni.

Tildrög málsins voru þau að Samskip kærði til áfrýjunarnefndar samkeppnismála ákvæði í sátt sem Eimskipafélag Íslands hf. (Eimskip) gerði 16. júní 2021 við Samkeppniseftirlitið. Í sáttinni viðurkenndi Eimskip alvarlegt samráð við Samskip, féllst á að greiða sekt og skuldbatt sig meðal annars til að hætta öllu viðskiptalegu samstarfi við Samskip. Í kærunni krafðist Samskip þess að skuldbindingar Eimskips um að hætta öllu viðskiptalegu samstarfi við Samskip yrðu felldar úr gildi.

Áfrýjunarefnd samkeppnismála vísaði aftur á móti kærunni frá á þeim grunni að Samskip hefði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn um skuldbindingar í sátt Eimskips, sbr. úrskurð nefndarinnar frá 2. desember 2021.

Samskip vildi ekki una úrskurðinum og stefndi Samkeppniseftirlitinu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Með dómi héraðdóms var niðurstöðu áfrýjunarnefndar snúið við og Samskip talið geta borið lögmæti sáttar Eimskips undir áfrýjunarnefndina. Samkeppniseftirlitið áfrýjaði dóminum til Landsréttar.

Í dómi Landsréttar kom aftur á móti fram að sáttin hafi verið skuldbindandi fyrir Eimskip en ekki Samskip. Í hlutarins eðli lægi að sáttin hafi verið til þess fallin að takmarka samstarf fyrirtækjanna sem hafi sætt rannsókn Samkeppniseftirlitsins. Aðili að samráðsmáli, sem væri til rannsóknar, og hefði ekki viðurkennt brot gæti ekki talist aðili að sátt þess aðila sem hafi viðurkennt brot og undirgengist greiðslu sektar. Meðal annars með vísan til þessa var Samskip ekki talið hafa sýnt fram á að fyrirtækið hefði lögvarða hagsmuni af úrlausn um hvaða skuldbindingu Eimskip hefði gengist undir gagnvart Samkeppniseftirlitinu með sáttinni.

Í dómi Hæstaréttar í dag er vísað til úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá 19. mars 2025 í máli nr. 7/2023. Í þeim úrskurði hafi verið staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Samskip hefði gerst sekt um umfangsmikil og alvarleg brot með því að hafa átt í ólögmætu samráði við Eimskip. Jafnframt hafi verið staðfest fyrirmæli sem beint var til Samskipa í því skyni að verja og efla samkeppni. Voru þetta hliðstæð fyrirmæli og þau sem er að finna í sáttinni við Eimskip.

Í dómi Hæstaréttar er bent á sáttir séu eitt af lögbundnum úrræðum samkeppnisyfirvalda við framkvæmd samkeppnislaga. Verði Samkeppniseftirlitið að „geta treyst því að sátt vegna samráðs feli í sér endanlegar lyktir máls gagnvart fyrirtæki og það grípi til þeirra aðgerða sem það hefur skuldbundið sig til. Þær skuldbindingar sem fyrirtæki gengst þannig undir til að koma í veg fyrir frekari brot og stuðla að virkri samkeppni verða því að jafnaði ekki skildar frá öðrum ákvæðum sáttar.“ Þá er vísað til þess að Samskip geti látið reyna á það með kvörtun til Samkeppniseftirlitsins ef fyrirtækið telji að neitun Eimskips um tiltekin viðskipti feli í sér misnotkun á ætlaðri markaðsráðandi stöðu Eimskips. Með vísan til m.a. þessa var dómur Landsréttar staðfestur.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.