16.10.2025

Kjör á fasteignalánum - Viðbrögð viðskiptabanka við dómi Hæstaréttar

Í kjölfar dóms Hæstaréttar Íslands í máli Neytendasamtakanna gegn Íslandsbanka hefur sprottið umræða um möguleg áhrif dómsins um vaxtakjör til framtíðar. Í einhverjum tilvikum hafa starfsmenn eða stjórnendur bankanna leitt að því líkur að dómurinn muni leiða til hækkunar vaxta.

Af þessu tilefni áréttar Samkeppniseftirlitið að gera verður þá kröfu til keppinauta á viðskiptabankamarkaði að þeir taki sjálfstæðar ákvarðanir um vaxtakjör sín. Starfsmenn og stjórnendur viðskiptabanka ættu undir engum kringumstæðum að miðla upplýsingum til keppinauta um fyrirhugaðar eða líklegar breytingar á vaxtakjörum, hvorki opinberlega, á vettvangi hagsmunasamtaka, milliliðalaust, né með öðrum hætti.

Samkeppnislög banna hvers konar samráð milli fyrirtækja sem hefur það að markmiði eða af því leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni eða hún takmörkuð. Það getur til dæmis talist til ólögmæts samráðs ef keppinautar ræða saman um væntanlegar verðhækkanir eða miðla upplýsingum um það hver til annars, t.d. í fjölmiðlum.

Til þess að samkeppni þrífist þurfa fyrirtæki að búa við ákveðna óvissu um það hvernig keppinautarnir hyggist bregðast við utanaðkomandi aðstæðum hverju sinni, s.s. verðhækkunum frá birgjum, ákvörðunum stjórnvalda eða dómsúrlausnum. Í samkeppnisumhverfi leita fyrirtæki mismunandi leiða til að bjóða vörur eða þjónustu á sem hagstæðustu verði, s.s. að hagræða í rekstri. Búi fyrirtæki hins vegar yfir vitneskju um viðbrögð keppinautanna dregur úr hvötum þeirra til að keppa og halda verði niðri.

Meðal annars af þessum ástæðum banna samkeppnislög einnig hvers konar samkeppnishindranir af hálfu hagsmunasamtaka fyrirtækja. Undir það bann fellur til dæmis upplýsingamiðlun samtaka um væntanlegar hækkanir eða sameiginlegur rökstuðningur þeirra fyrir hækkunum.

Viðurkennt er að háttsemi af þessu tagi sé sérstaklega skaðleg á fákeppnismörkuðum.

Fyrirtæki og hagsmunasamtök þeirra mega vænta þess að Samkeppniseftirlitið taki vísbendingar um samkeppnishamlandi háttsemi sem hér er lýst til alvarlegrar athugunar. Brot á samkeppnislögum geta varðað ströngum viðurlögum.

Samkeppniseftirlitið hefur áður vakið athygli á mikilvægi þess að stjórnendur fyrirtækja fari að framangreindu, sbr. m.a. frétt á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins þann 18. desember 2024. Nánari leiðbeiningar til hagmunasamtaka fyrirtækja og upplýsingar um fyrri mál af þessum toga má finna á þessari leiðbeiningarsíðu.