Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Verðhækkanir – opinber umfjöllun keppinauta og hagsmunasamtaka þeirra getur farið gegn samkeppnislögum

18. desember 2024
snowcap mountain

Í fjölmiðlum hefur undanfarið verið
fjallað talsvert um verðhækkanir sem framundan kunni að vera og neytendur muni
finna fyrir. Til umfjöllunar hafa verið ýmsar mikilvægar neytendavörur eins og
matvæli og raforka.

Keppinautar og hagsmunasamtök
fyrirtækja hafa tekið þátt í þessari opinberu umræðu. Nefna má sem dæmi að starfsmenn
tveggja fyrirtækja sem eru keppinautar í framleiðslu tiltekins vöruflokks mættu
saman í umræðuþátt og ræddu verðhækkanir. Í samtali þeirra voru færð fyrir því
rök að hækkandi hráefnisverð hefði leitt til hækkunar á umræddum vörum til
neytenda og boðuðu þeir jafnframt að frekari verðhækkanir væru í farvatninu. Í
öðru tilviki voru tekin viðtöl við stjórnendur dagvörukeðja og haft eftir þeim
að verulegar hækkanir væru framundan.

Þá eru nýleg dæmi um að
forsvarsmenn hagsmunasamtaka fyrirtækja hafi tjáð sig opinberlega um að
framundan séu hækkanir á ýmsum nauðsynjavörum og eftir atvikum fært rök fyrir
nauðsyn slíkra hækkana.

Samkeppnislögin setja keppinautum og samtökum þeirra skorður

Af þessu tilefni er rétt að minna á
að samkeppnislög banna hvers konar samráð milli fyrirtækja sem hefur það að
markmiði eða af því leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni eða hún takmörkuð.
Það getur til dæmis talist til ólögmæts samráðs ef keppinautar ræða saman um
væntanlegar verðhækkanir eða miðla upplýsingum um það hver til annars, þ.á m. í
opinberri umræðu, t.d. fjölmiðlum.

Til þess að samkeppni þrífist þurfa
fyrirtæki að búa við ákveðna óvissu um það hvernig keppinautarnir hyggist
bregðast við utanaðkomandi aðstæðum hverju sinni, s.s. verðhækkunum frá
birgjum. Í samkeppnisumhverfi leita fyrirtæki mismunandi leiða til að bjóða
vörur eða þjónustu á sem hagstæðustu verði, s.s. að hagræða í rekstri, leita betri
kjara hjá öðrum birgjum eða draga úr arðgreiðslum. Búi fyrirtæki hins vegar
yfir vitneskju um viðbrögð keppinautanna dregur úr hvötum þeirra til að keppa
og halda verði niðri.

Meðal annars af þessum ástæðum
banna samkeppnislög einnig hvers konar samkeppnishindranir af hálfu
hagsmunasamtaka fyrirtækja. Undir það bann fellur til dæmis upplýsingamiðlun
samtaka um væntanlegar hækkanir eða sameiginlegur rökstuðningur þeirra fyrir hækkunum.

Viðurkennt er að háttsemi af þessu
tagi sé sérstaklega skaðleg á fákeppnismörkuðum.

Fyrirtæki og hagsmunasamtök
þeirra mega vænta þess að Samkeppniseftirlitið taki vísbendingar um
samkeppnishamlandi háttsemi sem hér er lýst til alvarlegrar athugunar. Brot á
samkeppnislögum geta varðað ströngum viðurlögum.

Árétting til fyrirtækja og samtaka þeirra

Með framangreint í huga telur
Samkeppniseftirlitið mikilvægt að brýna eftirfarandi fyrir fyrirtækjum og
samtökum þeirra:

  • Fyrirtæki ættu undir engum kringumstæðum að
    miðla upplýsingum til keppinauta um fyrirhugaðar eða líklegar breytingar á
    verði, hvorki opinberlega, á vettvangi hagsmunasamtaka, milliliðalaust, né með
    öðrum hætti.
  • Hagsmunasamtökum fyrirtækja ber að fara gætilega
    þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á markaðshegðun
    félagsmanna. Öll þátttaka þeirra í umræðu um verð og verðlagningu er
    sérstaklega varhugaverð og ætti ekki að eiga sér stað nema tryggt sé að hún sé
    innan þeirra marka sem lög leyfa.
  • Á samkeppnismarkaði á hækkun á aðfangaverði ekki að
    leiða sjálfkrafa til hækkunar á verði til neytenda. Samkeppnislög gera ráð
    fyrir því að hvert og eitt fyrirtæki geri eigin ráðstafanir og taki
    sjálfstæðar ákvarðanir til að bregðast við slíkum áskorunum, á sínum eigin
    rekstrarlegu forsendum og án alls samráðs við keppinauta eða hvatningar
    frá hagsmunasamtökum.
  • Framangreint á við óháð því hvort í hlut eiga framleiðslufyrirtæki,
    innflutningsfyrirtæki, aðrir birgar eða smásalar.

Nánari leiðbeiningar til
hagmunasamtaka fyrirtækja og upplýsingar um fyrri mál af þessum toga má finna á
þessari leiðbeiningarsíðu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
SKE forstjóri, Arion, Kvika

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.