30.9.2022

Nýtt fræðslumyndband um ólögmætt samráð

Þriðja myndbandið í röð fræðslumyndbanda Samkeppniseftirlitsins

  • Ologmaett-samrad-vefmynd-2-

Samkeppniseftirlitið birtir í dag þriðja myndbandið í röð fræðslumyndbanda sem ætlað er að útskýra samkeppnistengd málefni á myndrænan og einfaldan hátt. Myndbandið sem er frumsýnt í dag fjallar um ólögmætt samráð og mögulegar afleiðingar þess. 

Myndböndin eru ætluð fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á að kynna sér þýðingu virkrar samkeppni, samkeppnislögin og hlutverk Samkeppniseftirlitsins.

Myndbandið má sjá í glugganum hér að neðan: 

https://www.youtube.com/watch?v=M2waENG7m1I

Áður hafði Samkeppniseftirlitið birt myndbönd annars vegar um samkeppniseftirlit almennt og hlutverk samkeppnisyfirvalda og hins vegar um misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Myndböndin má sjá í spilurunum hér að neðan: 

 

https://www.youtube.com/watch?v=PNmIElkaMXw&t=23s

 

https://www.youtube.com/watch?v=YL6hr3Y_kQM&t=3s
Ef áhugi er fyrir notkun myndbandanna, til dæmis við kennslu eða námskeiðahald, má endilega hafa samband við Hauk Harðarson, sérfræðing í miðlun og þróun hjá Samkeppniseftirlitinu.

Umræðu- og fræðsluhlutverk Samkeppniseftirlitsins

Útgáfa fræðslumyndbandanna er í takti við þann vilja löggjafans að efla hlutverk Samkeppniseftirlitsins sem málsvara fyrir samkeppnislögin og öfluga samkeppni. Eru þessar áherslur einnig í samræmi við markmið sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun á málefnasviði eftirlitsins. Í tengslum við breytingar á samkeppnislögum árið 2020 kom eftirfarandi meðal annars fram í frumvarpinu:

“Til að ábati virkrar samkeppni skili sér að fullu út í samfélagið er mikilvægt að koma fyrir fram í veg fyrir samkeppnislagabrot með aukinni fræðslu um samkeppnismál samfara því að sinna eftirliti með háttsemi fyrirtækja á markaði eftir á (ex-post).“

Þá var það áréttað að eitt af hlutverkum Samkeppniseftirlitsins sé að stuðla að umræðu og fræðslu um samkeppnismál og ábata virkrar samkeppni fyrir atvinnulíf og neytendur. Í því samhengi var eftirfarandi tekið fram:

„Rétt þykir að þetta mikilvæga hlutverk stofnunarinnar fái aukið vægi, líkt og Samkeppniseftirlitið hefur lagt áherslu á undanfarin ár, enda er það til þess fallið að efla faglega umræðu um samkeppnismál hér á landi.“

Við undirbúning á fræðslu Samkeppniseftirlitsins eru meðal annars hafðar til hliðsjónar niðurstöður úr könnunum sem Samkeppniseftirlitið lét framkvæma árin 2019 og 2020. Niðurstöður þeirra voru kynntar í skýrslunum Þekking og viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til samkeppnismála og Viðhorf almennings til samkeppnismála.

Niðurstöðurnar sýndu meðal annars að 30% stjórnenda íslenskra fyrirtækja töldu sig þekkja bannreglur samkeppnislaga illa eða alls ekkert. Þá sýndu kannanir einnig að þrátt fyrir að almenningur hér á landi sé meðvitaður um þýðingu samkeppnislaga fyrir hagsmuni sína sé full ástæða til að efla þekkingu almennings á samkeppnisreglum, ekki síst yngri hópa.

Það er von Samkeppniseftirlitsins að fólk á öllum aldri geti haft gagn og gaman af myndböndunum. Auk þess að vera aðgengileg hér á vefsíðunni, með íslenskum og enskum texta, verða þau einnig á Facebook og YouTube síðum Samkeppniseftirlitsins.