Fréttayfirlit (Síða 7)

Fyrirsagnalisti

12.7.2021 : Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum vegna fyrirhugaðra kaupa Marel Iceland ehf. á hlutafé í Völku ehf.

Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um samruna vegna kaupa Marel Iceland ehf., dótturfélags Marel hf., á hlutafé í Völku ehf. Með kaupunum eignast Marel Iceland ehf. 91,6% hlut í Völku ehf. Samkeppniseftirlitið kallar hér með eftir athugasemdum og sjónarmiðum allra hagaðila og annarra sem kunna að vilja tjá sig um samrunann.

30.6.2021 : Töluverð samþjöppun á íslenskum bókamarkaði

Samkeppniseftirlitið hefur birt skýrsluna Markaðsgreining á bókamarkaði. Í skýrslunni er fjallað um markaði fyrir útgáfu og heildsölu bóka á íslensku annars vegar og fyrir smásölu bóka á íslensku hins vegar. Skýrslan er birt til upplýsingar fyrir markaðsaðila sem og aðra áhugasama.

23.6.2021 : Samkeppnismál og sjónvarpsréttindi

Samkeppniseftirlitið birtir bréf um heildsölu og útboð sýningarréttar vegna Ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

23.6.2021 : Samkeppniseftirlitið óskar eftir umsögnum vegna samruna Nova, Sýnar og ITP

Samkeppniseftirlitið vekur athygli á því að umsagnarferli markaðsaðila vegna samruna Nova, Sýnar og ITP er hafið. Er þess óskað að umsagnir berist Samkeppniseftirlitinu eigi síðar en 1. júlí nk. á netfangið samkeppni@samkeppni.is

16.6.2021 : Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á brotum Eimskips lokið með sátt

Eimskip og Samkeppniseftirlitið undirrituðu í dag sátt vegna rannsóknar á ætluðum brotum Eimskips og Samskipa hf. gegn 10. gr. samkeppnislaga og 53. gr. EES-samningsins. Sáttin felur í sér að Eimskip viðurkennir alvarleg brot og greiðir 1.500.000.000 kr. í stjórnvaldssekt sem rennur í ríkissjóð.

10.6.2021 : Yfirlýsing vegna sáttarviðræðna við Eimskip

Samkeppniseftirlitið hefur hafið sáttarviðræður við Eimskip vegna rannsóknar á ætluðu ólögmætu samráði Eimskips og Samskipa. 

9.6.2021 : Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum um samkeppnisvísa

Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum um samkeppnisvísa sem eftirlitið hyggst birta með reglulegum hætti. Niðurstöður benda til töluverðrar samþjöppunar og aðgangshindrana.

8.6.2021 : Samkeppniseftirlitið tilnefnt til alþjóðlegra verðlauna

Samkeppniseftirlitið hefur ásamt kollegum sínum á Norðurlöndum verið tilnefnt til „Antitrust Writing Awards 2021“ í flokknum „Best Soft Law“ fyrir yfirlýsingu um samkeppni, samkeppniseftirlit og þróun regluverks á tímum stafrænna markaða. 

3.6.2021 : Samtal um samkeppni: Vel sóttur umræðufundur um meðferð samrunamála

Kynning af fundinum gerð aðgengileg

Þriðjudaginn 1. júní sl. hélt Samkeppniseftirlitið opinn veffund um meðferð samrunamála, en rúmlega 40 manns tóku þátt í fundinum.

1.6.2021 : Rýmkun á heimildum til lyfjaverslunar hefur jákvæð áhrif á hagsmuni neytenda

Sameiginleg afstaða norrænu samkeppniseftirlitsanna til lyfjaverslunar

Samkeppniseftirlitið hefur beint áliti til heilbrigðisyfirvalda þar sem vakin er athygli á nýrri skýrslu um samkeppni á mörkuðum um netverslun lyfja, sem samkeppniseftirlitin á Norðurlöndum hafa gefið út.

25.5.2021 : Samruni Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða – Rannsókn málsins og forsendum ákvörðunar gerð ítarlegri skil

Þann 13. apríl 2021 heimilaði Samkeppniseftirlitið samruna Norðlenska matborðsins ehf., Kjarnafæðis hf. og SAH afurða ehf. á grundvelli skilyrða í sátt sem samrunaaðilar gerðu við Samkeppniseftirlitið. Sama dag birti Samkeppniseftirlitið ákvörðun nr. 12/2021 þar sem gerð er nánari grein fyrir rannsókn málsins og þeim skilyrðum sem voru sett samrunanum. 

17.5.2021 : Samtal um samkeppni: Opinn umræðufundur um meðferð samrunamála

Samkeppniseftirlitið boðar til opins veffundar þann 1. júní nk., þar sem öllum áhugasömum er boðið að taka þátt í samtali um meðferð samrunamála og reynsluna af samrunareglum sem settar voru um síðustu áramót. Með þátttöku á fundinum gefst stjórnendum fyrirtækja jafnframt tækifæri til að kynna sér verklag við meðferð samrunamála og hvaða tækifæri þeir hafa til þess að stuðla að skilvirkri málsmeðferð. Fundurinn er sá þriðji í röð umræðufunda um þetta málefni.

17.5.2021 : Samkeppnisstefna styður við nýsköpun

Í vorblaði Vísbendingar – Nýsköpun í brennidepli, fjallar Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins um hvort samkeppnisstefna styðji við nýsköpun.

11.5.2021 : Stjórnunar- og eignatengsl fyrirtækja – verkefni Samkeppniseftirlitsins 2008-2021

Samkeppniseftirlitið hefur birt skýrslu nr. 2/2021, Stjórnunar- og eignatengsl fyrirtækja – verkefni Samkeppniseftirlitsins 2008-2021. Í skýrslunni er gerð grein fyrir megindráttum í störfum eftirlitsins á vettvangi stjórnunar- og eignatengsla frá bankahruni til þessa dags.

27.4.2021 : Kaup Samkaupa á verslunum Festi í Nóatúni og á Hellu

Samkeppniseftirlitinu hefur borist samrunatilkynning vegna kaupa Samkaupa annars vegar á verslun Festi í Nóatúni, Reykjavík, og hins vegar verslun Festi á Hellu. 

23.4.2021 : Framkvæmdastjórn ESB samþykkir beiðni Samkeppniseftirlitsins að alþjóðlegur samruni fyrirtækja á sviði krabbameinsskimana verði rannsakaður

Í gær samþykkti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins beiðni Samkeppniseftirlitsins, og sambærilegar beiðnir samkeppnisyfirvalda í Belgíu, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi og Noregi, um að taka samruna Illumina og Grail til meðferðar. Um er að ræða líftæknifélög sem m.a. sérhæfa sig á sviði krabbameinsskimana.

20.4.2021 : Þýðing virkrar samkeppni í íslensku atvinnulífi

Í dag hefur Samkeppniseftirlitið birt rit nr. 1/2020 þar sem teknar hafa verið saman rannsóknir um áhrif samkeppni á ýmsa hagræna þætti sem mörgum er kunnugt um, s.s. á framleiðni, nýsköpun og hagvöxt, en einnig er fjallað um áhrif samkeppni á aðra þætti sem alla jafna er ekki rætt jafn mikið um, s.s. fæðuöryggi, ójöfnuð og atvinnustig.

 

15.4.2021 : Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum vegna fyrirhugaðra kaupa Skeljungs hf. á Port I ehf.,eignarhaldsfélagi Dælunnar ehf. og Löðurs ehf.

Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um samruna vegna kaupa Skeljungs hf. á öllum hlutum í félaginu Port I ehf. Með kaupunum eignast Skeljungur rekstur Löðurs bílaþvottastöðva og eldsneytisstöðva Dælunnar. Hér má finna samrunaskrá fyrirtækjanna þar sem trúnaðarupplýsingar hafa verið fjarlægðar.

 

13.4.2021 : Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða með skilyrðum

Samkeppniseftirlitið hefur í dag heimilað samruna kjötafurðastöðvanna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða með skilyrðum. Samrunaaðilar brugðust við mati eftirlitsins á skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni með því að setja fram tillögur að skilyrðum sem væru til þess fallnar að mæta áhyggjum Samkeppniseftirlitsins af skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni, en gerðu um leið samrunaaðilum kleift að framkvæma samrunann og ná markmiðum hans. 

30.3.2021 : Vegna umfjöllunar um málefni Festi á forsíðu Fréttablaðsins

Í viðtali Fréttablaðsins við framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins á forsíðu Fréttablaðsins í dag kallar hann eftir „stjórnsýsluúttekt á framferði Samkeppniseftirlitsins“, sem m.a. þurfi „að svara áleitnum spurningum um ákvarðanir tengdar verslun Festar hf. á Hellu og óhóflegan kostnað af kunnáttumanni“. Kemur fram að „Festi hafi ítrekað gert efnislegar og rökstuddar athugasemdir við störf óháða kunnáttumannsins og gagnrýnt óhóflega þóknun sem hann hefur krafið félagið um.“

Síða 7 af 38