Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið ógildir samruna á markaði fyrir sölu áburðar

3. júní 2024

Samkeppniseftirlitið hefur birt
ákvörðun um að ógilda kaup Skeljungs ehf. á Búvís ehf. Skeljungur er í eigu
SKEL fjárfestingafélags ehf., starfar á fjölbreyttum sviðum íslensks atvinnulífs
og sér bændum m.a. fyrir aðföngum, þ.á m. áburði. Búvís sérhæfir sig í sölu
aðfanga og tækja til bænda, þ.m.t. sölu áburðar.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins
hefur leitt í ljós að Búvís er mikilvægur keppinautur á markaði fyrir
innflutning og sölu á áburði og að samruninn hefði að öllu óbreyttu haft
umtalsverð skaðleg áhrif á þeim markaði. Því sé óhjákvæmilegt að ógilda
samrunann.

Áburður er mikilvægt aðfang í
landbúnaði og stór kostnaðarliður hjá bændum. Fyrri rannsóknir
Samkeppniseftirlitsins gefa til kynna að samningsstaða bænda gagnvart aðilum
sem sjá þeim fyrir þjónustu og aðföngum sé veik, auk þess sem fjárhagsstaða
bænda er að jafnaði erfið.

Gögn málsins sýna að Búvís var
stofnað sem andsvar við verulegum verðhækkunum á áburði og skorti á samkeppni.
Umsagnir bænda, sem aflað var í málinu, sýna einnig að Búvís hafi breytt
samkeppnisaðstæðum til hins betra, haldið verðum niðri og bætt þjónustu og
viðskiptakjör til bænda. Hætta er á því að aðstæður á markaði færu í fyrra horf
hefði orðið af samrunanum.

Búvís og Skeljungur eru nánir
keppinautar við sölu áburðar. Þá er Búvís öflugur keppinautur sem veitir öðrum
fyrirtækjum samkeppni umfram það sem markaðshlutdeild þess gefur til kynna. Með
yfirtöku Skeljungs hefði því horfið það mikilvæga og öfluga samkeppnislega
aðhald sem stafar frá Búvís.

Ef yfirtaka Skeljungs á Búvís
hefði náð fram að ganga hefði burðugum keppinautum fækkað úr fjórum í þrjá.
Veruleg samþjöppun hefði orðið á fákeppnismarkaði umfram það sem ásættanlegt er
samkvæmt viðurkenndum viðmiðum samkeppnisréttar.

Þessu til viðbótar hefði fækkun
keppinauta á fákeppnismarkaði málsins þær afleiðingar að aðstæður hefðu orðið
mun hentugri til samhæfingar, svo sem við verðákvörðun, bændum og neytendum til
tjóns.

Þá hafa samrunaaðilar ekki lagt
fram fullnægjandi upplýsingar, gögn eða skýringar, þess efnis að samruninn hafi
í för með sér hagræðingu eða efnahagslegar framfarir sem mótvægi við skaðleg
áhrif samrunans.

Undir meðferð málsins hafa
samrunaaðilar hvorki óskað eftir sáttaviðræðum né lagt fram tillögur að
mögulegum skilyrðum. Þá hafa samrunaaðilar ekki nýtt heimild samkeppnislaga til
þess óska framlengingar á tímafrestum í málinu, í því skyni að skapa rými fyrir
frekari rannsókn.

Ítarlegri samantekt, sem og umfjöllun um samrunann,
rannsókn eftirlitsins, málsmeðferðina og skaðleg áhrif samrunans, má finna í
birtri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins hér .

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.