Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Um og yfir 8 af hverjum 10 Íslendingum hafa upplifað vandamál sökum skorts á samkeppni

10. maí 2024

Um mitt ár 2023 framkvæmdi Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands könnun að beiðni Samkeppniseftirlitsins um viðhorf almennings til ýmissa
þátta tengdum samkeppnismálum. Könnunin er sambærileg könnun sem
Samkeppniseftirlitið lét framkvæma árið 2019 og könnunum sem framkvæmdastjórn
ESB lét framkvæma í öllum aðildarríkjum árin 2022 og 2019. Gefur hún
því færi á samanburði við viðhorf almennings yfir tíma og við aðildarríki ESB.

Meginniðurstöður könnunarinnar og samanburður við fyrri
könnun hér á landi sem og nýlega könnun ESB má finna hér .  Samandregið eru niðurstöðurnar eftirfarandi.

Vandamál sökum skorts á samkeppni útbreidd hér á landi

  • Um
    og yfir 8 af hverjum 10 Íslendingum hafa upplifað vandamál sökum skorts á
    samkeppni í samanburði við um 6 af hverjum 10
    í ESB.
  • Íslendingar
    verða mest varir við vandamál sökum skorts á samkeppni á matvörumarkaði (36%),
    í fjármálaþjónustu (35%) og farþegaþjónustu (26%). Í könnun ESB nefna hins
    vegar flestir orkumarkað, matvörumarkað og síma- og netþjónustu.
  • Hátt
    verð og lítill verðmunur oftast nefnt þegar spurt er hver séu helstu vandamálin
    á viðkomandi mörkuðum.

Jákvætt viðhorf almennings til samkeppnismála

  • 94%
    svarenda telja virka samkeppni hafa góð áhrif á sig sem neytendur. Viðhorf
    almennings til jákvæðra áhrifa samkeppni jákvæðara hér á landi (86%) en í ESB (75%).
  • Um
    8 til 9 af hverjum 10 telja að stefna stjórnvalda sem ýtir undir virka
    samkeppni geti haft gagnleg áhrif á nýsköpun, hagvöxt, atvinnustig og stuðli að
    betri og ódýrari vörum og þjónustu fyrir alla.

Mikill stuðningur við aðgerðir til að auka samkeppni

  • Nær
    allir svarendur telja mikilvægt, til að hvetja til aukinnar samkeppni, að koma
    í veg fyrir samráð og að sterkir aðilar misnoti stöðu sína (97%).
  • Hærra
    hlutfall almennings hér á landi er sammála mikilvægi aðgerða til þess að hvetja
    til aukinnar samkeppni (90%) í samanburði við meðaltal ESB (82%).
  • Um
    8 af hverjum 10 svarendum telja mikilvægt að draga úr forskoti frá
    samkeppnisaðilum sem njóta ríkisstyrkja innan og utan Evrópska
    efnahagsvæðisins.

Almenningur meðvitaður um samkeppnismál

  • Færri
    Íslendingar heyrðu eða lásu um samkeppnismál árið 2023 (58%) samanborið við
    2019 (68%). Í könnun ESB höfðu 5 af hverjum 10 gert slíkt.
  • 8
    af hverjum 10 nefndu Samkeppniseftirlitið þegar spurt var hjá hverjum það
    samkeppnismál sem viðkomandi hafði heyrt um eða lesið var til meðferðar
    samanborið við 6 af hverjum 10 í könnun ESB.

Bakgrunnsupplýsingar:

Könnuninni svöruðu 1.247 einstaklingar. Í könnuninni var
spurt um viðhorf almennings til eftirfarandi þátta:

  • Áhrifa samkeppni á neytendur og efnahagslífið.
  • Persónulegrar reynslu af vandamálum vegna skorts
    á samkeppni, flokkað eftir geirum og birtingarmynd vandamálanna. Nánar tiltekið
    var spurt um samkeppni í síma- og netþjónustu, farþegaþjónustu, matvörumarkaði,
    fjármálaþjónustu, lyfjamarkaði og orkumarkaði.
  • Hvort og hvar viðkomandi hafi heyrt eða lesið um
    samkeppnismál og hvar málið hafi verið til meðferðar.
  • Hvert almenningur leiti ef hann verður áskynja
    um samkeppnisvandamál.

Nánari upplýsingar um könnunina, samanburð við niðurstöður
könnunar sem framkvæmd var árið 2019 og niðurstöður nýlegrar könnunar ESB má
finna í riti Samkeppniseftirlitsins nr.2/2024 , Viðhorf almennings til samkeppnismála.  Þá má finna skýrslu Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um könnunina hér.


Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.