Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Skilyrði sem hvíla á Rapyd Europe vegna tiltekinna eldri mála hafa verið endurskoðuð

4. júní 2024
snowcap mountain

Við kaup Rapyd Financial
Network (2016) Ltd. (hér eftir „Rapyd“) á Valitor hf., sbr. ákvörðun nr. 13/2022, Samruni
Rapyd og Valitors hf.
, færðust skilyrði sem hvílt höfðu á Valitor hf. vegna
eldri sátta félagsins við Samkeppniseftirlitið yfir á Rapyd Europe hf.,
dótturfélag Rapyd hérlendis. Skilyrðin fela m.a. í sér að Rapyd Europe þarf að
fylgja tilteknum háttsemisskilyrðum og viðhafa tiltekið skipulag í starfsemi
sinni.

Rapyd Europe
óskaði eftir endurskoðun Samkeppniseftirlitsins á umræddum skilyrðum tveggja
eldri sátta. Þeirri endurskoðun er nú lokið, með því að fyrirtækið hefur gert
nýja heildarsátt við Samkeppniseftirlitið á grunni hinna tveggja eldri sátta.

Í hinni nýju
heildarsátt hafa verið dregin saman öll þau efnisskilyrði úr viðkomandi eldri sáttum
sem enn hafa þýðingu, orðalag hefur verið uppfært og bætt hefur verið við
sérstakri grein sem inniheldur skilgreiningar hugtaka. Samhliða gildistöku
hinnar nýju heildarsáttar falla úr gildi allar kvaðir umræddra eldri sátta sem hvílt
hafa á Rapyd Europe enda koma þær kvaðir sem áfram hafa þýðingu fram í nýju
heildarsáttinni.

Þær tvær eldri
sáttir sem endurskoðaðar hafa verið eru annars vegar sátt, dags. 15. desember
2014, milli Valitors hf. (nú Rapyd Europe) og Samkeppniseftirlitsins, sbr.
ákvörðun eftirlitsins nr. 8/2015, Breytingar á skipulagi og framkvæmd á
greiðslukortamarkaði
. Hins vegar er um að ræða sátt, dags. 29.
nóvember 2007, milli Greiðslumiðlunar hf. (síðar Valitor hf. og nú Rapyd
Europe) og Samkeppniseftirlitsins, sbr. ákvörðun eftirlitsins nr. 4/2008, Brot
Greiðslumiðlunar hf., Kreditkorts hf. og Fjölgreiðslumiðlunar hf. á bannákvæðum
samkeppnislaga
, með breytingum skv. ákvörðun nr. 34/2008.

Frá því að
framangreindar sáttir voru gerðar hafa sumar forsendur sem lágu þeim til
grundvallar breyst með þeim hætti að ýmis ákvæði þeirra hafa ekki lengur
þýðingu. Þær forsendur sem um ræðir lúta einkum að eignarhaldi sem hefur
gjörbreyst, að innleiðingu á reglugerð ESB um milligjöld og kortatengdar
greiðslur, og að margvíslegri þróun í markaðsumhverfi Rapyd Europe að öðru
leyti. Að mati Samkeppniseftirlitsins er því bæði málefnalegt og viðeigandi að grisja
sáttirnar með þeim hætti sem nú hefur verið gert með því að draga saman þau
ákvæði sem enn hafa þýðingu í nýja heildarsátt. Með því skapast skýrari rammi
utan um þá verndarhagsmuni sem áfram er nauðsynlegt að tryggja. Á þeim
grundvelli er hin nýja umgjörð til þess fallin að stuðla að skilvirkara
eftirliti og framfylgni við skilyrðin.

Að efni til er
hinni nýju heildarsátt fyrst og fremst ætlað að tryggja að Rapyd Europe geti
ekki notið samkeppnisforskots á markaði/mörkuðum fyrir færsluhirðingu hérlendis
á grundvelli hlutverks síns sem útgáfuvinnsluaðili fyrir ýmsar helstu
innlánsstofnanir landsins. Þau ákvæði sáttarinnar sem ekki miða að þessu
markmiði lúta í aðalatriðum almennt að því að styrkja samkeppnislegar
undirstöður markaðarins í ljósi framangreinds hlutverks Rapyd Europe á sviði
útgáfuvinnslu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.