Samkeppni Logo

Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Rapyd og Valitors með skilyrðum sem leiða m.a. til þess að Kvika banki haslar sér völl í færsluhirðingu

31. október 2025

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna Rapyd og
Valitors með skilyrðum eins og fram kemur í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr.13/2022, Samruni Rapyd og Valitors, sem birt er í dag. Þar með hefur
Samkeppniseftirlitið lokið rannsókn sinni á kaupum Rapyd Financial Network
(2016) Ltd. („Rapyd“) á öllu hlutafé í Valitor hf. („Valitor“). 

Dótturfélag
Rapyd er Rapyd Europe hf., sem áður hét Korta hf., en félagið stundar
greiðsluþjónustustarfsemi meðal annars hér á landi, líkt og Valitor. Með
viðskiptunum hyggst Rapyd sameina rekstur Valitors og Rapyd Europe hf.

Samruninn hefur fyrst og fremst áhrif á mörkuðum fyrir
færsluhirðingu hjá íslenskum söluaðilum, þ.e. vegna viðskipta á sölustað á
Íslandi (óháð uppgjörsmynt) og vegna netviðskipta með uppgjöri í íslenskum
krónum.*

Það er
niðurstaða rannsóknarinnar að ef hin áformuðu kaup Rapyd á Valitor hefðu gengið
fram óbreytt og án íhlutunar hefði markaðshlutdeild sameinaðs fyrirtækis orðið
á bilinu 70-75% fyrir færsluhirðingu hjá íslenskum söluaðilum.** Samruninn hefði því leitt
til afgerandi markaðsráðandi stöðu sameinaðs félags eða eftir atvikum
styrkingar á mögulegri markaðsráðandi stöðu Valitors. Telur
Samkeppniseftirlitið að samrunaaðilar séu nánir keppinautar á markaði og að
talsverðar aðgangshindranir séu til staðar. Að mati Samkeppniseftirlitsins
hefði samruninn verið til þess fallinn að hindra virka samkeppni í skilningi samkeppnislaga.

Við rekstur
málsins brugðust samrunaaðilar við frummati Samkeppniseftirlitsins með því að óska
eftir viðræðum um sátt í málinu og leggja til aðgerðir til þess að eyða
skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni. Leiddu viðræðurnar til þess að Rapyd gerði
sátt við Samkeppniseftirlitið um tilteknar aðgerðir.

Í aðgerðunum
felst meðal annars að Rapyd skuldbindur sig til þess að selja frá sér
fjölbreytt safn færsluhirðingarsamninga til hæfs kaupanda sem samsvarar hærri
markaðshlutdeild á meginmarkaði málsins en markaðshlutdeild Rapyd Europe hf.
Með sölunni fer markaðshlutdeild hins sameinaða fyrirtækis jafnframt marktækt niður
fyrir 50%.

Á meðan á
meðferð málsins stóð hófu samrunaaðilar söluferli sem miðaði að þessu og gerðu að
lokum samning við Kviku banka hf. („Kvika“) um kaup á fjölbreyttu safni
færsluhirðingarsamninga.

Í þessu felst að Rapyd hefur skuldbundið sig til að koma í
veg fyrir þá samþjöppun sem af samrunanum hefði leitt. Skapar salan jafnframt
aðstæður fyrir nýjan aðila, Kviku, sem þegar veitir greiðslutengda þjónustu
undir vörumerkjum Netgíró og Aur, til að hasla sér völl á
færsluhirðingarmarkaði og keppa um viðskipti við söluaðila.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins:

„Virk samkeppni á
greiðslukorta- og greiðsluþjónustumörkuðum skiptir miklu máli og hefur áhrif á
verð vöru og þjónustu til neytenda á Íslandi.
Það er því þýðingarmikið að allir sem að þessu máli koma tryggi að þau
skilyrði sem sett eru fyrir kaupum Rapyd á Valitor gangi fram samkvæmt efni
sínu. Með því yrði skapaður jarðvegur fyrir jákvæðar breytingar á þessu sviði,
neytendum til hagsbóta.“

Nánar um
skuldbindingar Rapyd og Kviku

Í sáttinni við
Rapyd er að finna ítarleg skilyrði sem tryggja eiga að það safn samninga sem
selt er sé fjölbreytt, meðal annars hvað stærðar- og atvinnugreinadreifingu
söluaðila varðar. Um leið er skilyrðunum ætlað að koma í veg fyrir óhagræði
fyrir viðskiptavini í færsluhirðingu (söluaðila), en eðli máls samkvæmt verður
ekki gengið á rétt þeirra til að velja sér þjónustuaðila í færsluhirðingu, að
teknu tilliti til gildandi samninga.

Rapyd mun
tímabundið veita Kviku þjónustu, einkum á sviði tæknilegrar framkvæmdar og
uppgjörs gagnvart alþjóðlegu kortafélögunum. Jafnframt felst í þessari þjónustu
að Kvika getur starfað tímabundið á grundvelli aðalleyfa samrunaaðila frá
alþjóðlegu kortakerfunum. Stuðlar þetta að því að yfirfærsla
viðskiptasambandanna og þjónusta Kviku við söluaðila í framhaldinu gangi
hnökralaust fyrir sig á umskiptatímabilinu.

Til þess að
tryggja að þessi áform skili árangri hefur Kvika einnig gert sátt við
Samkeppniseftirlitið þar sem félagið skuldbindur sig meðal annars til þess að
færa framangreind þjónustukaup sín fyrir tiltekin tímamörk frá samrunaaðilum
til annars þjónustuveitanda sem ekki er umsvifamikill færsluhirðir á íslenska
markaðnum. Er þetta mikilvægur liður í því að tryggja varanlegt samkeppnislegt
sjálfstæði Kviku frá sameinuðu félagi.

Í tengslum við hina tímabundnu þjónustu sem Rapyd veitir
Kviku, hefur félagið skuldbundið sig til að koma á tilteknum aðskilnaði og
verkefnaaðgreiningu innan sameinaðs félags í því skyni að vinna gegn því að það
geti nýtt sér viðkvæmar viðskiptaupplýsingar um starfsemi Kviku sér til
framdráttar. Þá er Rapyd óheimilt að kaupa aftur hina seldu samninga í 10 ár og
óheimilt að keppa um viðskipti við söluaðila í hinum seldu samningum í
tiltekinn tíma eftir að tímabundnum þjónustukaupum Kviku af þeim lýkur.

Framkvæmd
samrunans er háð því að tilteknir fyrirvarar séu uppfylltir. Við birtingu
ákvörðunar þessarar liggur fyrir að þessir fyrirvarar geti talist uppfylltir.

Í ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins er gerð ítarleg grein fyrir rannsókn málsins og niðurstöðum.
Meðal annars er fjallað um skilyrði fyrir samrunanum og sátt
Samkeppniseftirlitsins við Rapyd. Einnig koma fram í ákvörðuninni helstu
forsendur að baki sátt Samkeppniseftirlitsins við Kviku.

Ákvörðunin er aðgengileg hér.

Bakgrunnsupplýsingar
– fyrri athuganir:

Samkeppniseftirlitið
hefur á síðustu árum rannsakað mögulegar samkeppnishindranir á greiðsluþjónustumörkuðum
og gripið til íhlutunar í nokkrum málum. Nefna má eftirfarandi mál:


Ákvörðun nr. 8/2015.
Íhlutun gagnvart Landsbankanum, Arion banka, Íslandsbanka, Valitor og Borgun, einkum
vegna ólögmæts samráðs um milligjöld. Fyrirtækin gerðu sátt við
Samkeppniseftirlitið þar sem fyrirtækin viðurkenndu brot, greiddu sektir að
fjárhæð samtals 1.650 milljónir króna og skuldbundu sig til margvíslegra
breytinga á skipulagi og framkvæmd á greiðslukortamarkaði.


Ákvörðun nr. 8/2013.
Íhlutun vegna misnotkunar Valitors á markaðsráðandi stöðu sinni. Lagðar á
stjórnvaldssektir að fjárhæð 500 milljónir króna. Íhlutunin var staðfest í
Hæstarétti Íslands, með dómi þann 28. apríl
2016.


Ákvörðun nr. 4/2008.
Íhlutun vegna ólögmæts samráðs á vettvangi Valitors (áður Greiðslumiðlunar),
Borgunar (áður Kreditkorta) og Fjölgreiðslumiðlunar (síðar Greiðsluveitunnar)
og misnotkunar Valitor á markaðsráðandi stöðu. Fyrirtækin gerðu sátt við
Samkeppniseftirlitið þar sem þau viðurkenndu brot, greiddu sektir samtals að
fjárhæð 735 milljónir króna, og skuldbundu sig til aðgerða til að tryggja að
brot endurtækju sig ekki.


Stjörnumerktar útskýringar: 

* Færsluhirðing felur í meginatriðum í sér þjónustu sem gerir söluaðila kleift að
taka við greiðslukortum sem greiðslu í viðskiptum og tryggir að söluaðili fái
andvirði þess sem greitt er fyrir með greiðslukorti gert upp við sig.

** Við mat á markaðshlutdeild í málinu tók Samkeppniseftirlitið tillit til áhrifa
þess að nokkrir veigamiklir söluaðilar gerðu samninga um að færa þjónustukaup
sín ýmist til Valitors eða Rapyd á síðari hluta ársins 2021. Þetta hafði
veruleg áhrif á mat á hlutdeild Valitors og einnig jókst hlutdeild Rapyd við þetta.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.