Samkeppni Logo

Samruna ÍSAM, Ó. Johnson & Kaaber og Sælkeradreifingar sett skilyrði

23. september 2021

Samkeppniseftirlitið
birtir í dag ákvörðun í rannsókn á samruna ÍSAM ehf., Ó. Johnson & Kaaber ehf.
og Sælkeradreifingar ehf., en rannsókninni lauk þann 29. júlí sl. með sátt
milli samrunaaðila og Samkeppniseftirlitsins. Með sáttinni skuldbinda
samrunaaðilar sig til þess að grípa til aðgerða sem miða að því að eyða þeirri
samkeppnisröskun sem samruninn hefði að öðrum kosti leitt til.

Annars
vegar skuldbinda samrunaaðilar sig til þess að tryggja rekstrarlegan aðskilnað
milli sameinaðs fyrirtækis og tengds reksturs eigenda félaganna, einkum
Myllunnar. Heildsölurekstur samstæðunnar mun fara fram í nýju félagi um
svokallað sameiginlegt verkefni (e. Joint venture) sem aðskilið verður annarri
starfsemi.

Hins
vegar skuldbinda samrunaaðilar sig til þess að grípa til sértækari aðgerða til
að draga úr neikvæðum áhrifum samruna á samkeppni á sviði þar sem sameinað
fyrirtæki hefði að öðrum kosti haft mjög sterka stöðu. Vegna viðskiptahagsmuna
er á þessu stigi ekki hægt að upplýsa nánar um efni þessa skilyrðis, en það
verður gert á síðari stigum.

Nánari
umfjöllun er að finna í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2021.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.