Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Heilbrigðisráðuneytið boðar aukið jafnræði í heilsugæslu í framhaldi af tilmælum SKE – mikilvægt að þær nái fram að ganga

13. mars 2026

Hér á landi hafa stjórnvöld heimilað starfsemi bæði opinberrar og einkarekinnar heilsugæslu. Til þess heilsugæslurnar hafi hvata og getu til að bjóða sem besta þjónustu til allra landsmanna, er mikilvægt að þær búi allar við sambærileg starfsskilyrði. Það hefur ekki verið tryggt.

Með þetta í huga hefur SKE á liðnum árum beint tilmælum til heilbrigðisyfirvalda um að jafna stöðu einkarekinnar og opinberrar heilsugæslu. Meðal annars þurfi að jafna rekstrarskilyrði þeirra, vinna gegn mismunun við verðlagningu rannsóknarþjónustu, setja skýran ramma um samskipti og samninga opinberra og einkarekinna stöðva og jafna skattalega meðferð.  Þá þurfi að jafna stöðuna með skýrum reglum um miðlæga þjónustu, sambærilegu eftirliti og jafnræði í sérnámi lækna.

Í nóvember síðastliðnum áréttaði Samkeppniseftirlitið fyrri tilmæli. Tilmælin, ásamt frétt á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins, eru aðgengileg hér.

Heilbrigðisráðuneytið svaraði erindi Samkeppniseftirlitsins með bréfi, dags. 31. desember 2025, og gerði grein fyrir tilteknum breytingum. Mikilvægt er að þær nái fram að ganga og að áfram verði haldið á sömu braut.

Svar ráðuneytisins við tilmælum eftirlitsins

Í svari ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið hyggist í vinnu sinni gera tiltekna breytingar sem ætlað er að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna heilsugæslustöðva gagnvart opinberum stöðvum, að teknu tilliti til ólíks rekstrarumhverfis þeirra.

Nánar tiltekið gerði ráðuneytið grein fyrir eftirfarandi breytingum:

  1. Jafnt einingaverð frá 1. janúar 2026

Ráðuneytið tilkynnti að allar heilsugæslustöðvar myndu frá og með 1. janúar 2026 greiða sama einingaverð fyrir rannsóknarþjónustu Landspítalans. Með þessu er brugðist við áralöngu misræmi þar sem einkareknar stöðvar greiddu hærra verð en opinberar.

  1. Endurskipulagning miðlægrar þjónustu

Ráðuneytið vinnur að breytingum á miðlægri þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Þar á meðal eru:

  • stofnun Stafrænnar heilsu, nýrrar miðlægrar þróunar- og þjónustumiðstöðvar,
  • flutningur geðþjónustu í fangelsum til Landspítala,
  • endurmat á fyrirkomulagi og aðgengi að Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar.
  1. Eftirlit, kröfulýsingar og ný reglugerð

Unnið sé að nýrri reglugerð um heilsugæslu sem mun skýra kröfur til heilsugæslustöðva, óháð rekstrarformi. Þannig verði brugðist við ábendingum um að opinberar stöðvar hafi ekki sætt sambærilegu eftirliti og einkareknar.

  1. Jafnræði í sérnámi og skattaumhverfi til skoðunar

Ráðuneytið staðfestir að fjármögnun sérnámslækna sé nú dreift jafnt óháð rekstrarformi. Þá verði í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands og fjármálaráðuneytið skoðað hvort endurgreiðsla virðisaukaskatts geti verið útfærð með öðrum hætti til að tryggja meira hlutleysi í rekstri.

Svar HRN 29. desember 2025 

Afstaða Samkeppniseftirlitsins og frekari tilmæli

Tilmæli Samkeppniseftirlitsins voru upphaflega sett fram í október 2017 og hafði aðeins að takmörkuðu leyti verið brugðist við þeim. Samkvæmt svari ráðuneytisins við nýjustu tilmælum eftirlitsins hafa nú verið gerðar mikilvægar breytingar hvað varðar rannsóknarkostnað. Er það mjög jákvætt.

Jafnframt eru boðaðar breytingar á miðlægri þjónustu. Að mati eftirlitsins er mikilvægt að þessi miðlæga þjónusta sé sett upp með það markmiði að þjónusta alla þætti heilbrigðiskerfisins með sambærilegum og sanngjörnum hætti og að einstaka aðilum sé ekki hyglað á kostnað annarra.

Samkeppniseftirlitið hvetur ráðuneytið til þess að ljúka þeim verkefnum sem lýst er í svörum þess. Jafnframt mælist eftirlitið til þess að fjármögnunarmódel heilsugæslu og annað umhverfi rekstursins verði reglulega tekið til skoðunar með það í huga að tryggja jafna samkeppnisstöðu, að teknu tilliti til allra þátta.

Nánar um tilmæli Samkeppniseftirlitsins

Í október 2017 beindi Samkeppniseftirlitið tilmælum til heilbrigðisráðuneytisins um að jafna starfsumhverfi einkarekinna og opinberra heilsugæslustöðva. Tilefni tilmælanna voru athugasemdir sem höfðu borist frá einkareknum heilsugæslustöðvum um samkeppnislega mismunun. Í bréfinu til ráðuneytisins var jafnframt fjallað um þær breytingar sem höfðu orðið á heilsugæslukerfinu á höfuðborgarsvæðinu og mikilvægi þess að notendur heilsugæslustöðva geti flutt sig á milli heilsugæslustöðva óháð rekstrarformi þeirra og þannig skapað hvata fyrir stöðvarnar til að bæta þjónustu, skilvirkni og hagkvæmni í kerfinu.

Beindi Samkeppniseftirlitið eftirfarandi tilmælum til ráðherra:

  1. Almenn skoðun fari fram á þeirri mismunandi aðstöðu sem annars vegar opinberar og hins vegar einkareknar heilsugæslustöðvar búa við. Heilbrigðisráðherra beiti sér m.a. fyrir því að mismunandi aðstaða opinberra og einkarekinna heilsugæslustöðva þegar kemur að sjúklingatryggingum verði skoðuð og að gripið verði til aðgerða til að jafna samkeppnisstöðu aðila að þessu leyti.
  2. Tryggt sé að Landspítali mismuni ekki viðskiptaaðilum við verðlagningu á rannsóknarþjónustu.
  3. Að skýr og afmarkaður rammi verði settur utan um samskipti og samninga milli Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og einkarekinna heilsugæslustöðva.
  4. Að skattaleg meðferð rekstrar annars vegar opinberra og hins vegar einkarekinna heilsugæslustöðva verði sem jöfnust.

Í nóvember 2025 áréttaði Samkeppniseftirlitið tilmælin og taldi sérstaklega brýnt að jafna mismunun varðandi rannsóknarkostnað auk eftirfarandi:

  • Mikilvægt er að heilbrigðisyfirvöld setji sérstök ákvæði um samkeppnislegt jafnræði í samningum sem gerðir eru vegna miðlægrar þjónustu og fylgist með að þeim sé fylgt eftir. Í dag er þessari þjónustu einkum sinnt af Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, en það sama ætti við óháð því hver þjónustuveitandinn er. Sem dæmi er mikilvægt að miðlæg þjónusta beini ekki skjólstæðingum á aðrar stöðvar en þeir eru skráðir á nema sérstakar aðstæður mæli með því.
  •  Einkareknar heilsugæslustöðvar hafa bent á að opinberar heilsugæslustöðvar búi ekki við sambærilegt eftirlit og einkareknar stöðvar hvað varðar kröfulýsingar. Þannig hafi ákveðnar opinberar stöðvar ekki uppfyllt lágmarkskröfur um opnunartíma, mönnun og þjónustu. Ekkert eftirlit sé með því að opinberar heilsugæslustöðvar fylgi kröfulýsingum og engar afleiðingar fylgi því að þær séu brotnar.
  • Mikilvægt er að einkareknar heilsugæslustöðvar njóti jafnræðis á við opinberar stöðvar þegar kemur að sérnámi í heimilislækningum. Samkvæmt kvartendum hefur ríkið kostað um 20 sérnámsstöður heimilislækna árlega, en einkareknar stöðvar ekki átt möguleika á að sækja um að nýta sér það.
  • Mikilvægt er að tekið sé tillit til þess í kostnaðarlíkani heilsugæslustöðva að einkareknar heilsugæslustöðvar þurfa að greiða sérstakt iðgjald fyrir sjúklingatryggingar.
  • Skoða mætti að haga endurgreiðslu vegna virðisaukaskatts með öðrum hætti en nú er til þess að auðvelda hverri rekstrareiningu að meta og ákveða hvaða verkefnum er útvistað og hverjum ekki, s.s. símsvörun, ræstingu, tölvukerfi o.s.frv.

 

 

 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunamál í sumar, tafir og ný mál

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir ve...
  • 23. júní 2026
  • Fréttir

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.