Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Pistlar

Samkeppni á raforkumarkaði og staða almennings í landinu

21. desember 2023

Pistillinn birtist fyrst á Vísi fimmtudaginn 21. desember 2023.

Undanfarið hefur nokkuð verið fjallað um frumvarp atvinnuveganefndar Alþingis til laga um breytingar á raforkulögum til að tryggja almenningi forgang að raforku ef til kemur viðvarandi orkuskortur. Felur frumvarpið m.a. í sér að komi til orkuskorts geti þau fyrirtæki sem kaupa raforku í heildsölu af Landsvirkjun aðeins selt þá orku til almennings, stofnana og lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en ekki stórnotenda eins og þau gera að einhverju leyti núna. Þessi skilyrði munu hins vegar ekki eiga við um Landsvirkjun, þ.e. það fyrirtæki getur áfram boðið öllum sínum viðskiptavinum, þ.m.t. stórnotendum upp á raforku með sama fyrirkomulagi og áður.

Til stóð að afgreiða frumvarpið fyrir jól, en afgreiðslu þess var að lokum frestað. Samkeppniseftirlitið veitti umsögn við frumvarpið, sem birt var á heimasíðu eftirlitsins þann 12. desember 2023.

Af gefnu tilefni teljum við rétt að árétta nokkur atriði sem skipta miklu máli þegar reglur um þetta eru mótaðar og settar.

Fyrst ber að árétta að Samkeppniseftirlitið hefur fullan skilning á því að taka þurfi á þeim vanda sem mögulega getur komið upp á raforkumarkaði í náinni framtíð vegna skorts á raforku. Þannig kunni að verða mikilvægt að tryggja að almenningur og fyrirtæki njóti forgangs á raforku fram yfir stórnotendur og einnig að raforkukostnaður neytenda verði ekki óhóflegur ef til kæmi orkuskortur.

Við val á leiðum til að verja þessa almannahagsmuni verður að hafa í huga að markmið raforkulaga um aukna samkeppni og neytendavernd hafa ekki náð fram að ganga sem skildi á þeim tuttugu árum sem lögin hafa verið í gildi. Mikilvægt er því að allar aðgerðir sem ráðist er í nú miði eins og kostur er að því að auka samkeppni, þar á meðal að skerða ekki tækifæri minni og nýrri aðila á markaðnum til þess að keppa við stærri aðila.

Þegar verja þarf sérstaka almannahagsmuni, eins og aðgengi almennings að raforku, er mikilvægt að velja þá leið sem helst styður við samkeppni og síst takmarkar hana. Til er viðurkennd aðferðafræði sem miðar að þessu, en hún hefur verið kölluð samkeppnismat (e. competition assessment toolkit). Er þessari aðferðafræði lýst í áliti nr. 2/2009, Samkeppnismat stjórnvalda. Samkeppniseftirlitið hefur talað fyrir því að samkeppnismati sé beitt við undirbúning nýrra laga og reglna, en með misjöfnum árangri.

Eitt af því sem almennt ber að varast er að stjórnvöld mismuni fyrirtækjum á markaði með reglusetningu. Þannig getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir almannahagsmuni ef lög og reglur mismuna þátttakendum á markaði með þeim hætti að tækifæri minni aðila til að keppa skerðist. Þetta getur t.d. gerst ef settar eru reglur sem með einhverjum hætti veita markaðsráðandi eða opinberu fyrirtæki tækifæri sem öðrum standa ekki til boða, eða setja minni og nýjum fyrirtækjum skorður sem ekki eiga við um hið markaðsráðandi fyrirtæki.

Slíkar reglur geta síðan mögulega haft þau áhrif að erfiðara verður að verja samkeppni með beitingu almennra samkeppnisreglna til framtíðar, þar á meðal beitingu bannsins við misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Þótt markmið fyrirliggjandi frumvarps sé að verja hagmuni almennings og fyrirtækja gagnvart raforkuviðskiptum stórnotenda, getur mismununin sem í því felst skaðað samkeppni í sölu raforku til almennings og fyrirtækja til lengri tíma.

Samkeppniseftirlitinu hafa á liðnum misserum borist allmargar kvartanir og ábendingar vegna samkeppnisaðstæðna á raforkumarkaði. Tengjast þær í mörgum tilvikum orkuskiptum og breytingum vegna aðgerða gegn hlýnun jarðar og tilraunum nýrra og smærri aðila til að komast inn á markaðinn og vaxa við hlið rótgrónari fyrirtækja. Þessar kvartanir og ábendingar eru til vitnis um gerjun og vilja til breytinga sem til lengri tíma geta leitt til virkari samkeppni. Áhersla stjórnvalda verður að beinast að því að liðka til fyrir nýjum tækifærum og virkari samkeppni og leysa úr þeim samkeppnishindrunum sem til staðar eru.

Allt framangreint verður að hafa í huga þegar valdar eru leiðir til þess að verja aðgang almennings að ódýrri raforku. Fyrrgreind umsögn Samkeppniseftirlitsins við frumvarp atvinnuveganefndar byggir á þessum sjónarmiðum.

Sigrún Eyjólfsdóttir er sérfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu.

Steingrímur Ægisson er verkefnis- og teymisstjóri hjá Samkeppniseftirlitinu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Samkeppnismat – aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni

  • 27. febrúar 2026
  • Pistlar

Virk samkeppni er fyrirhafnarinnar virði – Hlutverk eftirlitsmeð samkeppni á raforkumarkaði

  • 27. maí 2025
  • Pistlar

Við verðum að gera betur – Skilar samkeppni okkur samkeppnishæfu matarverði?

  • 10. mars 2025
  • GreinarPistlar

Hagræðum með því að endurskoða umgjörð útboðsmála

  • 28. febrúar 2025
  • Pistlar

Skilar samkeppniseftirlit ávinningi?

  • 20. nóvember 2024
  • Pistlar

Margt er skrifað og misjafnt satt – staðreyndir umsamrunamál

  • 27. júní 2024
  • Pistlar

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda – Annað bréf til bænda

  • 13. júní 2024
  • Pistlar

Undanþágur búvörulaga og staða bænda

  • 21. maí 2024
  • Pistlar

Samkeppni á áætlunarflugi til og frá Íslandi hefur verið þjóðfélaginu öllu til mikilla hagsbóta

  • 8. apríl 2024
  • Pistlar
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Greinar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.