Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Pistlar

Skilar samkeppniseftirlit ávinningi?

20. nóvember 2024

Pistillinn birtist fyrst í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 20. nóvember 2024   

Á liðnum mánuðum hefur í opinberri umræðu verið fjallað um þann kostnað sem óumdeilanlega leiðir af eftirliti hér á landi með ýmissi starfsemi. Eðlilegt og hollt er að fjallað sé um að kostnaður vegna eftirlits fari ekki úr hófi fram. Í slíkri umræðu er hins vegar mikilvægt að gleyma ekki hinni hliðinni á peningnum sem er sú að samfélagslegur ávinningur er fólginn í því að eftirlit sé til staðar og lögum og reglum samfélagsins sé fylgt. Oft er þó flóknara að leggja mat á þann ávinning heldur en kostnað vegna slíks eftirlits sem kann að skýra litla umfjöllun um samfélagslegan ávinning af eftirliti.

Í þágu upplýstrar umræðu eru hér reifaðar niðurstöður um mat á ávinningi af samkeppniseftirliti hér á landi frá árinu 2005, sbr. nýjustu skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2024, Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins 2014-2023. Hafa erlendar systurstofnanir, t.a.m. samkeppnisdeild framkvæmdastjórnar ESB og bresk og hollensk samkeppnisyfirvöld unnið slíkar greiningar á sl. árum.

Mat á reiknuðum ábata af samkeppniseftirliti

Greining Samkeppniseftirlitsins miðar að því að meta reiknaðan ábata vegna íhlutunar eftirlitsins á grundvelli samkeppnislaga og styðst við aðferðafræði sem lýst er í leiðbeiningum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) frá 2014 sem nefnast Guide for helping competition authorities assess the expected impact of their activities. Greiningin og aðferðafræði hennar er rýnd af óháðum sérfræðingum.

Grunnforsenda leiðbeininga OECD er sú að brot fyrirtækja á samkeppnislögum, sem felast t.a.m. í samráði eða misnotkun á markaðsráðandi stöðu, eða samrunar sem raska samkeppni, leiði að jafnaði til hærra verðs og lakari gæða á viðkomandi markaði heldur en á markaði þar sem samkeppni nýtur við. Með íhlutun sinni koma samkeppnisyfirvöld því í veg fyrir að hærra verð og lakari gæði til viðskiptavina á viðkomandi markaði sé viðvarandi.

Reiknaður ábati er því mat á þeim skaða sem viðskiptavinir hefðu orðið fyrir ef ekki hefði komið til íhlutunar samkeppnisyfirvalda. Viðskiptavinir geta hvort sem er verið neytendur eða önnur fyrirtæki. Greiningin miðar þó ekki að því að leggja heildarmat á þjóðhagslegan ávinning af samkeppniseftirliti. Ekki er tekið tillit til margvíslegra jákvæðra áhrifa sem virk samkeppni getur haft, t.a.m. aukinnar nýsköpunar og aukinnar þjóðhagslegrar hagkvæmni efnahagslífs. Þá er ekki horft til taps fyrirtækja sem verða af viðbótartekjum vegna þess að háttsemi sem fer gegn samkeppnislögum er stöðvuð.

Rannsóknir á áhrifum samkeppnislagabrota benda til þess að þær forsendur sem stuðst er við séu varfærnar, en nánar er fjallað um það í skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2024.

Reiknaður ábati nemur margföldum fjárframlögum til stofnunarinnar

Niðurstöður greiningar fyrir íhlutun Samkeppniseftirlitsins til og með ársloka 2023 voru birtar í september sl. en greining Samkeppniseftirlitsins nær aftur til ársins 2005 þegar Samkeppniseftirlitið hóf starfsemi í núverandi mynd. Niðurstöðurnar eru birtar sem meðaltal yfir 10 ára tímabil til að jafna út sveiflur milli ára.

Reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins á tíu ára tímabilinu 2014-2023 samsvaraði 17-29-földum fjárframlögum til stofnunarinnar yfir tímabilið, eða um 10,7-17,7 ma.kr. á ári hverju að meðaltali á verðlagi ársins 2023.

Sjá má af mynd 1 að 10 ára meðaltal reiknaðs ábata hefur haldist tiltölulega stöðugt. Árlegt meðaltal reiknaðs ábata vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins var lægst á tímabilinu 2011-2020 þegar reiknaður ábati nam um 15-26-földum fjárframlögum ríkisins til stofnunarinnar eða um 8,8-15,1 ma.kr. á ári hverju að meðaltali. Reiknaður ábati var hæstur á tímabilinu 2008-2017 þegar hann nam um 20-36-földum fjárframlögum eða um 10,9-19,5 ma.kr. á ári hverju að meðaltali. Fjárhæðir eru á verðlagi ársins 2023.

Að lokum

Í umræðu um eftirlit hér á landi er mikilvægt er að horfa til þess ávinnings sem opinbert eftirlit skilar, ekki síður en til þess kostnaðar sem af því hlýst. Í tilviki eftirlits með því að samkeppnislögum sé fylgt er ávinningur samfélagsins margfaldur á við kostnaðinn en reiknaður ábati vegna íhlutunar Samkeppniseftirlitsins á tíu ára tímabilinu 2014-2023 samsvaraði 17-29-földum fjárframlögum til stofnunarinnar, eða um 10,7-17,7 ma.kr. á ári hverju að meðaltali. Rétt forgangsröðun á opinberu fé er mikilvæg en gæta þarf að því að spara ekki eyrinn og kasta um leið krónunni.

Atli Rúnar Kristinsson er hagfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu. 

 Valur Þráinsson er aðalhagfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Samkeppnismat – aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni

Öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf er grunnforsenda velferðar á Íslandi. Til að stuðla að því markmiði er mikilvægt að atvinnulífið búi ekki við þyng...
  • 27. febrúar 2026
  • Pistlar

Virk samkeppni er fyrirhafnarinnar virði – Hlutverk eftirlitsmeð samkeppni á raforkumarkaði

Þann 23. maí 2025 tók Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, þátt í málstofu á Samorkuþingi á Akureyri. Málstofan bar yfirskriftina „H...
  • 27. maí 2025
  • Pistlar

Hagræðum með því að endurskoða umgjörð útboðsmála

Hönnun útboða og eftirlit með virkri samkeppni milli þátttakenda hefur veruleg áhrif á kjör hins opinbera í innkaupum sínum. Opinber innkaup nema háum...
  • 28. febrúar 2025
  • Pistlar

Margt er skrifað og misjafnt satt – staðreyndir umsamrunamál

Pistillinn birtist fyrst sem grein á vef Viðskiptablaðsins þann 26. júní sl. Nýlega vöknuðu til lífsins kunnuglegar gagnrýnisraddir samrunaeftirlits o...
  • 27. júní 2024
  • Pistlar

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda – Annað bréf til bænda

Pistill þessi birtist sem grein í Bændablaðinu (bls. 48) þann 13. júní 2024. Ágætu bændur, Í Bændablaðinu þann 16. maí sl. reifaði ég í bréfi til ykka...
  • 13. júní 2024
  • Pistlar

Undanþágur búvörulaga og staða bænda

Pistill þessi birtist sem grein í Bændablaðinu þann 16. maí 2024. Ágætu bændur, Rétt fyrir páska voru samþykktar á Alþingi breytingar á búvörulögum se...
  • 21. maí 2024
  • Pistlar

Samkeppni á áætlunarflugi til og frá Íslandi hefur verið þjóðfélaginu öllu til mikilla hagsbóta

Ræða forstjóra Icelandair á aðalfundi nýlega Á aðalfundi Icelandair í mars sl. fjallaði Bogi Nils Bogason forstjóri félagsins í ræðu um samkeppni í áæ...
  • 8. apríl 2024
  • Pistlar

Umreiknaðan ábata af íhlutunum Samkeppniseftirlitsins

Pistillinn birtist fyrst í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 21. febrúar 2024 Nýlega birti Samkeppniseftirlitið mat sitt á reiknuðum ábata af íhlutunum þ...
  • 21. febrúar 2024
  • Pistlar

Við blasa tækifæri til að einfalda regluverk og aukasamkeppni

Í dag blása Samtök iðnaðarins (SI) til framleiðsluþings í Hörpu. Þar er íþyngjandi regluverk gert að umtalsefni og meðal annars beint sjónum að innlei...
  • 25. janúar 2024
  • Pistlar
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.