Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Pistlar

Samkeppnismat – aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni

27. febrúar 2026

Öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf er grunnforsenda velferðar á Íslandi. Til að stuðla að því markmiði er mikilvægt að atvinnulífið búi ekki við þyngri reglu- og stjórnsýslubyrði heldur en þörf er á. Þann 19. febrúar síðastliðinn stóðu Samkeppniseftirlitið, Stjórnarráðið og OECD fyrir opnum fundi sem bar yfirskriftina „Hvernig getum við eflt atvinnustarfsemi og fengið um leið meira fyrir minna?” Upptökur af ráðstefnunni er að finna á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.

Í erindi Federica Maiorano, sérfræðings á samkeppnissviði OECD kom fram að viðamikil úttekt stofnunarinnar á regluverki aðildarríkja leiði í ljós að samkeppnishindranir á Íslandi séu talsvert meiri heldur en meðaltal OECD ríkjanna. Til samanburðar er regluverk hinna Norðurlandanna meira samkeppnishvetjandi en meðaltalið. Í  skýrslu OECD frá 2025, um efnahagsaðstæður á Íslandi, kemur fram að með því að draga úr íþyngjandi reglu- og stjórnsýslubyrði mætti hækka verga landsframleiðslu á Íslandi um u.þ.b. 6,5% á 10 ára tímabili. Það er því til mikils að vinna.

Samkeppnismat

Samkeppniseftirlitið hefur lengi bent á mikilvægi þess að við setningu laga og reglna hér á landi sé beitt sk. samkeppnismati. Samkeppnismat er aðferðafræði sem OECD hefur beint til aðildarríkja að nýta til að koma auga á samkeppnishindranir í regluverki. Með því að komast hjá og ryðja úr vegi slíkum hindrunum er hægt að opna markaði, efla samkeppni og draga úr reglubyrði.

Til að stuðla að frekari innleiðingu samkeppnismats við íslenska laga- og reglugerðarsetningu hélt  Samkeppniseftirlitið velheppnaða vinnustofu þann 17. febrúar sl. með stjórnendum og starfsmönnum ráðuneyta og stofnana sem koma að mótun og setningu regluverks. Á vinnustofunni var m.a. farið ítarlega yfir leiðbeiningar OECD um beitingu samkeppnismats (Competition Assessment Toolkit).

Samkeppnismati er ekki einungis hægt að beita við undirbúning nýrra laga og reglna, heldur er ekki síður mikilvægt að eyða samkeppnishindrunum í gildandi regluverki. Að beiðni íslenskra stjórnvalda og í samstarfi við Samkeppniseftirlitið framkvæmdi OECD ítarlega greiningu á regluverki byggingaiðnaðar og ferðaþjónustu og var skýrsla með niðurstöðum stofnunarinnar birt í lok árs 2020.

Tillögur OECD

Í skýrslunni setti OECD fram 438 tillögur um breytingar á regluverki, þar af 122 er varða ferðaþjónustu og 316 er varða byggingariðnað. Var það mat OECD að einföldun regluverks sem í tillögunum felast geti leitt til aukinnar landsframleiðslu sem svari til um 1% af vergri landsframleiðslu.

Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að skjóta styrkari stoðum undir ferðaþjónustu. Samkeppni í flugi og allri atvinnustarfsemi sem tengist rekstri Keflavíkurflugvallar og öðrum mikilvægum innviðum er forsenda öflugrar ferðaþjónustu hér á landi. Að sama skapi er einföldun regluverks í byggingariðnaði til þess fallin að draga úr húsnæðiskostnaði. Einföldun skipulagsreglna og ferla við undirbúning og útgáfu byggingarleyfa eru liður í þessu.

Núverandi ríkisstjórn hefur lagt áherslu á einföldun regluverks. Síðasta haust kynnti ríkisstjórnin jafnframt svokallaðan húsnæðispakka sem m.a. er ætlað að lækka húsnæðiskostnað. Liður í þeim aðgerðum er að einfalda regluverk á þessu sviði. Framangreindar tillögur OECD geta komið að góðum notum í þessum aðgerðum, en tillögunum hefur ekki verið hrint í framkvæmd nema að litlum hluta.

Á þessum sviðum, sem og ýmsum öðrum sviðum atvinnulífsins er tækifæri til að gera betur, auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og þar með stuðla að virkari samkeppni öllum til heilla.

 

Margrét Einarsdóttir, stjórnarformaður Samkeppniseftirlitsins og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Pistill þessi var birt sem grein á visir.is þann 26. febrúar 2026,

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Virk samkeppni er fyrirhafnarinnar virði – Hlutverk eftirlitsmeð samkeppni á raforkumarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, tók þátt í málstofu á Samorkuþingi á Akureyri 23. maí 2025. Málstofan bar yfirskriftina „Hlutve...
  • 27. maí 2025
  • Pistlar

Hagræðum með því að endurskoða umgjörð útboðsmála

Eftir Val Þráinsson Hönnun útboða og eftirlit með virkri samkeppni milli þátttakenda hefur veruleg áhrif á kjör hins opinbera í innkaupum sínum. Opinb...
  • 28. febrúar 2025
  • Pistlar

Skilar samkeppniseftirlit ávinningi?

Eftir Val Þráinsson og Atla Rúnar Kristinsson Á liðnum mánuðum hefur í opinberri umræðu verið fjallað um þann kostnað sem óumdeilanlega leiðir af efti...
  • 20. nóvember 2024
  • Pistlar

Margt er skrifað og misjafnt satt – staðreyndir um samrunamál

Eftir Halldór Hallgrímsson Gröndal Nýlega vöknuðu til lífsins kunnuglegar gagnrýnisraddir samrunaeftirlits og kváðu sér hljóðs. Tilefni þessa pistils...
  • 27. júní 2024
  • Pistlar

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda – Annað bréf til bænda

Ágætu bændur, Í Bændablaðinu þann 16. maí sl. reifaði ég í bréfi til ykkar áhyggjur Samkeppniseftirlitsins af nýsamþykktum breytingum á búvörulögum, þ...
  • 13. júní 2024
  • Pistlar

Undanþágur búvörulaga og staða bænda

Ágætu bændur, Rétt fyrir páska voru samþykktar á Alþingi breytingar á búvörulögum sem heimila kjötafurðastöðvum að hafa með sér samráð sem ólögmætt er...
  • 21. maí 2024
  • Pistlar

Samkeppni á áætlunarflugi til og frá Íslandi hefur verið þjóðfélaginu öllu til mikilla hagsbóta

Ræða forstjóra Icelandair á aðalfundi nýlega Á aðalfundi Icelandair í mars sl. fjallaði Bogi Nils Bogason forstjóri félagsins í ræðu um samkeppni í áæ...
  • 8. apríl 2024
  • Pistlar

Umreiknaðan ábata af íhlutunum Samkeppniseftirlitsins

Pistillinn birtist fyrst í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 21. febrúar 2024 Nýlega birti Samkeppniseftirlitið mat sitt á reiknuðum ábata af íhlutunum þ...
  • 21. febrúar 2024
  • Pistlar

Við blasa tækifæri til að einfalda regluverk og aukasamkeppni

Í dag blása Samtök iðnaðarins (SI) til framleiðsluþings í Hörpu. Þar er íþyngjandi regluverk gert að umtalsefni og meðal annars beint sjónum að innlei...
  • 25. janúar 2024
  • Pistlar
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.