Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Pistlar

Við blasa tækifæri til að einfalda regluverk og aukasamkeppni

25. janúar 2024

Í dag blása Samtök iðnaðarins (SI) til framleiðsluþings í Hörpu. Þar er íþyngjandi regluverk gert að umtalsefni og meðal annars beint sjónum að innleiðingu reglna á hinu evrópska efnahagssvæði og framkvæmd laga á Íslandi.

Af þessu tilefni er ástæða til þess að minna á fyrri tilmæli Samkeppniseftirlitsins til stjórnvalda sem þessu tengjast og fyrirliggjandi tillögur OECD um breytingar á regluverki á vettvangi iðnaðarins.

Samkeppnismat á regluverki

Samkeppniseftirlitið hefur um langa hríð talað fyrir því að stjórnvöld hér á landi framkvæmi svokallað samkeppnismat á lögum og reglum og beiti slíku mati eftir atvikum við aðrar stefnumarkandi aðgerðir. Samkeppnismat er skilvirk aðferðafræði sem miðar að því að efla samkeppni og vinna gegn samkeppnishindrunum, en með því er um leið unnið gegn óþarfa reglubyrði og óskilvirkni.

Samkeppnismat var fyrst kynnt formlega hér á landi með áliti Samkeppniseftirlitsins til stjórnvalda, nr.2/2009. Um er að ræða aðferðafræði þar sem tekin er afstaða til þess hvort viðkomandi reglur eða ákvarðanir stjórnvalda hafi áhrif á samkeppni. Ef slík áhrif eru til staðar er metið hvort tiltækar séu aðrar vægari leiðir til að ná markmiðum stjórnvalda og sú leið valin sem helst styður við samkeppni og síst er til þess fallin að hindra hana.

OECD hefur gefið út leiðbeiningar um þessa aðferðafræði undir heitinu „CompetitionAssessment Toolkit“ .

Tillögur að breytingum á regluverki í byggingariðnaði liggja fyrir

Haustið 2020 birti OECD skýrslu um sérstakt samkeppnismat á lögum og reglum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Gerðu íslensk stjórnvöld samning við OECD um framkvæmd matsins og var verkefnið unnið í nánu samstarfi við Samkeppniseftirlitið. Birti Samkeppniseftirlitið frétt um skýrsluna í nóvember 2020.

Í skýrslu OECD eru gerðar 316 tillögur til úrbóta á lögum og reglum í byggingariðnaði. Meðal annars eru lagðar til breytingar á byggingarreglugerð, að skapað sé svigrúm til nýskapandi lausna í húsnæðismálum, leyfisveitingar einfaldaðar og ferli við skipulagsákvarðanir einfaldað, svo eitthvað sé nefnt.

Þannig er settur fram fjöldi tillagna um einföldun regluverks, sem meðal annars mun fela í sér aukna skilvirkni í framkvæmd reglnanna. Að hluta til fela tillögurnar í sér einföldun á framkvæmd á regluverki sem Ísland hefur tekið upp á grundvelli EES-samningsins.

Segja má að við samkeppnismatið hafi matsaðilar sett sig í spor fólks í landinu sem hefur hug á því að koma sér nýju þaki yfir höfuðið. Þannig er fólkinu fylgt eftir þegar það finnur sér lóð, ákveður nýtingu hennar, lætur teikna húsið, fær síðan ýmsar ólíkar starfsstéttir til liðs við sig við bygginguna með tilheyrandi eftirliti, og flytur að lokum inn. Komið er auga á hindranir sem fólkið verður fyrir og lagðar til aðrar minna hindrandi lausnir.

Fjárhagslegur ávinningur af framkvæmd tillagnanna var ennfremur metinn. Var það mat OECD að breytingar á regluverki í byggingariðnaði og ferðaþjónustu gætu í heild skilað ábata (e. benefit) sem næmi um 1% af vergri landsframleiðslu Íslands, eða yfir 30 milljörðum króna árlega (miðað við aðstæður á árinu 2020).

Að mestu hafa tillögurnar ekki náð fram að ganga, enn sem komið er. Ekki þarf að fjölyrða um ávinning íslensks almennings og efnahagslífsins í heild af því að hrinda þessum tillögum í framkvæmd við núverandi aðstæður, þar sem byggingakostnaður hefur hækkað stórlega og ýmis áföll dunið yfir, nú síðast hremmingar Grindvíkinga.

Afstaða SI og aðildarfyrirtækja til einföldunar regluverks og virkrar samkeppni

Eins og áður segir er einföldun á regluverki og framkvæmd þess til umfjöllunar á þingi Samtaka iðnaðarins í dag. Gefur það vonir um að samtökin muni hvetja til þess að tillögur OECD um breytingar á regluverki í byggingariðnaði verði settar á dagskrá.

Slík afstaða væri í góðu samræmi við kannanir sem Samkeppniseftirlitið hefur látið framkvæma á vettvangi stjórnenda fyrirtækja um samkeppnismál á Íslandi. Í könnun sem gerð var á síðasta ári kom fram að stór hluti stjórnenda fyrirtækja taldi sig verða varann við samkeppnishindranir á sínum markaði.

Þannig taldi rúmur fjórðungur þeirra sig verða vara við samkeppnishamlandi lög og reglur að mjög miklu, frekar miklu eða nokkru leyti. Enn fleiri, eða tæpur þriðjungur, taldi sig verða vara við samráð á sínum markaði og rúmur þriðjungur taldi sig verða vara við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Tók könnunin meðal annars til starfsgreina á vettvangi SI. Nánari niðurstöður könnunarinnar verða birtar á næstu vikum.

Þessar niðurstöður eru í takt við fyrri kannanir sem Samkeppniseftirlitið hefur látið framkvæma á viðhorfum stjórnenda til samkeppni. Gefa þær til kynna óþol stjórnenda gagnvart samkeppnishindrunum sem þeir telja sig búa við og að nauðsynlegt sé að herða eftirlit með því að bannreglur samkeppnislaga séu virtar.

Jafnframt ættu niðurstöðurnar að vera brýning til stjórnvalda um að meta í auknum mæli samkeppnisleg áhrif laga og reglna (samkeppnismat) og ryðja úr vegi hindrunum á þeim vettvangi.

Páll Gunnar Pálsson

Höfundur er forstjóri Samkeppniseftirlitsins

Pistill þessi birtist sem grein á www.visir.is þann 25. janúar 2024

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samkeppnismat – aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni

Öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf er grunnforsenda velferðar á Íslandi. Til að stuðla að því markmiði er mikilvægt að atvinnulífið búi ekki við þyng...
  • 27. febrúar 2026
  • Pistlar

Virk samkeppni er fyrirhafnarinnar virði – Hlutverk eftirlitsmeð samkeppni á raforkumarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, tók þátt í málstofu á Samorkuþingi á Akureyri 23. maí 2025. Málstofan bar yfirskriftina „Hlutve...
  • 27. maí 2025
  • Pistlar

Hagræðum með því að endurskoða umgjörð útboðsmála

Eftir Val Þráinsson Hönnun útboða og eftirlit með virkri samkeppni milli þátttakenda hefur veruleg áhrif á kjör hins opinbera í innkaupum sínum. Opinb...
  • 28. febrúar 2025
  • Pistlar

Skilar samkeppniseftirlit ávinningi?

Eftir Val Þráinsson og Atla Rúnar Kristinsson Á liðnum mánuðum hefur í opinberri umræðu verið fjallað um þann kostnað sem óumdeilanlega leiðir af efti...
  • 20. nóvember 2024
  • Pistlar

Margt er skrifað og misjafnt satt – staðreyndir um samrunamál

Eftir Halldór Hallgrímsson Gröndal Nýlega vöknuðu til lífsins kunnuglegar gagnrýnisraddir samrunaeftirlits og kváðu sér hljóðs. Tilefni þessa pistils...
  • 27. júní 2024
  • Pistlar

Enn af undanþágum búvörulaga og stöðu bænda – Annað bréf til bænda

Ágætu bændur, Í Bændablaðinu þann 16. maí sl. reifaði ég í bréfi til ykkar áhyggjur Samkeppniseftirlitsins af nýsamþykktum breytingum á búvörulögum, þ...
  • 13. júní 2024
  • Pistlar

Undanþágur búvörulaga og staða bænda

Ágætu bændur, Rétt fyrir páska voru samþykktar á Alþingi breytingar á búvörulögum sem heimila kjötafurðastöðvum að hafa með sér samráð sem ólögmætt er...
  • 21. maí 2024
  • Pistlar

Samkeppni á áætlunarflugi til og frá Íslandi hefur verið þjóðfélaginu öllu til mikilla hagsbóta

Ræða forstjóra Icelandair á aðalfundi nýlega Á aðalfundi Icelandair í mars sl. fjallaði Bogi Nils Bogason forstjóri félagsins í ræðu um samkeppni í áæ...
  • 8. apríl 2024
  • Pistlar

Umreiknaðan ábata af íhlutunum Samkeppniseftirlitsins

Pistillinn birtist fyrst í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 21. febrúar 2024 Nýlega birti Samkeppniseftirlitið mat sitt á reiknuðum ábata af íhlutunum þ...
  • 21. febrúar 2024
  • Pistlar
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.