Samkeppni Logo

Samruni Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands – umsagnarferli

27. febrúar 2026

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands eru lífeyrissjóðir sem starfa samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Starfsemi sjóðanna felst í móttöku iðgjalda, vörslu og ávöxtun fjármuna sjóðfélaga, greiðslu lífeyris auk þess sem Frjálsi lífeyrissjóðurinn veitir sjóðsfélögum sínum fasteignalán.

Samrunatilkynning vegna samruna Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands, þar sem tilkynnendur lýsa samrunanum og samkeppni frá sjónarhorni lífeyrissjóðanna, er aðgengileg hér.

Öllum hagaðilum og áhugasömum er hér með veitt tækifæri til þess að koma á framfæri sjónarmiðum vegna þessa samruna, til dæmis um möguleg áhrif samrunans á samkeppni varðandi móttöku og ávöxtunar lífeyrissparnaðar, veitingu fasteignalána til sjóðsfélaga, aðstæður á viðkomandi mörkuðum og um önnur atriði sem lífeyrissjóðirnir fjalla um í samrunatilkynningu eða atriði sem umsagnaraðili kann að vilja koma á framfæri vegna samrunans.

Umsagnir sendist með tölvupósti á gogn@samkeppni.is og vegna lögbundinna tímafresta í samrunamálum skulu þær berast eigi síðar en mánudaginn 9. mars nk.

Innihaldi umsagnir trúnaðarupplýsingar er mikilvægt að taka slíkt fram og senda einnig eintak þar sem trúnaðarupplýsingar hafa verið fjarlægðar.

Styttri samrunaskrá vegna sameiningar Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands við Frjálsa lífeyrissjóðinn. Dags.19.2.2026 – án trúnaðarupplýsinga.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.