Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Rannsókn á Mílu lokið með stjórnvaldssektum og endurskoðun á skilyrðum sem hvíla á fyrirtækinu

19. mars 2026

Árið 2022 voru kaupum Ardian á Mílu sett ítarleg skilyrði til þess að vernda samkeppni í fjarskiptum. Síðar óskaði Míla eftir endurskoðun á skilyrðunum. Eftir ítarlega rannsókn hafa nú verið gerðar breytingar á þeim, einkum vegna breyttra markaðsaðstæðna á mörkuðum fyrir heimtaugar og gagnaflutning um þær.

Við rannsóknina komu fram vísbendingar um að Míla hefði brotið tiltekin skilyrði. Míla hefur nú viðurkennt brot og greiðir 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þeirra.

Míla og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt um framangreindar málalyktir.

Upphafleg skilyrði

Kaup Ardian á Mílu af Símanum á árinu 2022 fólu í sér samruna sem var til þess fallinn að raska samkeppni með umtalsverðum hætti. Var því talið nauðsynlegt að grípa til íhlutunar sem að lögum gat falið í sér ógildingu samrunans eða setningu skilyrða. Samkeppniseftirlitið, Ardian og Míla voru sammála um að unnt væri að vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans með setningu skuldbindandi skilyrða. Gengið var frá sátt um þessi skilyrði haustið 2022, sbr. frétt frá 15. september sama ár.

Skilyrðin fólu annars vegar í sér að gerðar voru breytingar á langtíma heildsölusamningi milli Símans og Mílu, sem m.a. lá til grundvallar verðmati á Mílu við kaupin. Þannig var dregið verulega úr skuldbindingum um viðskipti Símans við Mílu sem hefðu að óbreyttu útilokað að nær öllu leyti að keppinautar Mílu gætu boðið Símanum þjónustu, en Síminn er stærsti kaupandi að innviðaþjónustu á landinu. Hins vegar skuldbatt Míla sig til að lúta tilteknum skilyrðum í starfsemi sinni vegna sterkrar stöðu sinnar á markaðnum, en skilyrðin bönnuðu samkeppnishamlandi vöndlun og samtvinnun þjónustuþátta og tryggðu jafnan aðgang að kerfum, þjónustu og upplýsingum frá Mílu.

Ósk um endurskoðun – rannsókn á brotum

Á árinu 2024 óskaði Míla eftir endurskoðun á skilyrðunum, þ.e. að þau yrðu felld niður eða þrengd verulega vegna breyttra markaðsaðstæðna. Við athugun á þeirri beiðni komu fram vísbendingar um brot á tilteknum skilyrðum og samhliða komu fram kvartanir aðila á markaði í garð Mílu.

Í mars 2025 var Mílu kynnt frummat Samkeppniseftirlitsins vegna ætlaðra brota á skilyrðunum. Í framhaldi óskaði Míla eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið með það að markmiði að ljúka rannsókn eftirlitsins á brotum Mílu og endurskoðun á gildandi skilyrðum. Sáttaviðræður hófust í september 2025.

Viðurkenning á brotum og sektir

Með nýgerðri sátt við Samkeppniseftirlitið hefur Míla fallist á að tíðni og umfang samskipta milli Mílu og Símans frá október 2023 til desember 2024 hafi verið til þess fallið að takmarka hvata Símans til að kaupa þjónustu frá keppinautum Mílu, umfram það sem kaupskylda Símans samkvæmt samningi fyrirtækjanna kvað á um. Í þessu hafi falist brot á gildandi skilyrðum.

Vegna þessa fellst Míla á að greiða 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt. Skilyrðum nýrrar sáttar er m.a. ætlað að tryggja enn frekar að samkeppni geti ríkt um þau viðskipti Símans sem falla utan takmarkana heildsölusamningsins við Mílu og að Míla beiti sér ekki fyrir því að viðskiptavinir Símans (heimili og fyrirtæki) séu færð yfir á net Mílu frá netum keppinauta Mílu.

Endurskoðun á skilyrðum vegna breyttra markaðsaðstæðna

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur leitt í ljós breytingar á stöðu Mílu á mörkuðum fyrir heimtaugar, þ.e. aðgangi að kopar- og ljósleiðaratengingum og markaði fyrir gagnaflutning um heimtaugar (bitastraum). Ljóst er að Míla er enn með sterka stöðu á landsvísu á þessum mörkuðum (landsdekkandi) og býr yfir breiðu þjónustuframboði á öðrum sviðum innviða fjarskipta. Á hinn bóginn hafa aðrir keppinautar, einkum Ljósleiðarinn á sínum starfssvæðum (m.a. höfuðborgarsvæðinu), styrkt mjög stöðu sínu á liðnum árum og er nú með talsvert meiri hlutdeild þar í fjölda tenginga en Míla.

Af þessum sökum hefur Samkeppniseftirlitið fallist á að skilyrði um aðgang að kerfum, upplýsingagjöf og bann við samtvinnun og vöndlun gildi ekki nema á þeim landssvæðum þar sem Míla hefur umtalsverðan markaðsstyrk. Er þetta í samræmi við mat Fjarskiptastofu á nauðsyn kvaða á grundvelli fjarkskiptalaga. Verði þessi breyting ekki gerð er hætt á að viðkomandi ákvæði sáttarinnar hamli samkeppni í stað þess að verja hana og efla.

Jafnframt eru gerðar breytingar á gildandi skilyrðum í því skyni að skýra þau frekar í ljósi reynslu af framkvæmd þeirra.

Nánari forsendur þessarar niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins í málinu verða birtar á næstunni.

Ný sátt Samkeppniseftirlitsins og Mílu er aðgengileg hér.

 

 

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.