Samkeppni Logo

Samkeppnismat lykilatriði til að efla samkeppnishæfni

10. apríl 2026

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, og Margrét Einarsdóttir, stjórnarformaður stofnunarinnar, fjalla um mikilvægi samkeppnismats og einföldunar regluverks í pistli sem birtist fyrst á Vísi.

Þar benda þau á að samkeppnishindranir í íslensku regluverki séu meiri en að jafnaði í sambærilegum ríkjum og að tækifæri séu til að efla samkeppni og hagvöxt hér á landi með því að draga úr reglubyrði. Þau leggja áherslu á að öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf sé grunnforsenda velferðar og að samkeppnismat sé mikilvægt verkfæri til að greina og fjarlægja hindranir í regluverki.

Þá vísa þau til úttektar OECD sem sýnir að Norðurlöndin standi betur að vígi á þessu sviði en hér á landi. Í skýrslu OECD frá 2025 kemur jafnframt fram að með minni reglubyrði mætti auka verga landsframleiðslu á Íslandi um allt að 6,5% á tíu ára tímabili.

„Með því að komast hjá og ryðja úr vegi slíkum hindrunum er hægt að opna markaði, efla samkeppni og draga úr reglubyrði,“ segja Páll Gunnar og Margrét í pistlinum.

Nánar má lesa um efnið í pistlinum hér.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.