Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Samhentra kassagerðar ehf. og Valdimars Gíslasonar ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 36/2007
  • Dagsetning: 3/8/2007
  • Fyrirtæki:
    • Samhentir kassagerðin ehf.
    • Valdimar Gíslason ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Með bréfi dags, 27. apríl 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Samhentra Kassagerðar og Valdimars Gíslasonar. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.