Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Gámaþjónustu Austurlands ehf., og Sjónaráss ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 53/2007
  • Dagsetning: 1/10/2007
  • Fyrirtæki:
    • Gámaþjónusta Austurlands ehf.
    • Sjónaráss ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Umhverfismál
    • Sorp (hirðing og eyðing)
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi dags. 13. júlí sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna Gámaþjónustu Austurlands ehf. og Sjónaráss ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.