26.3.2020

COVID-19: Samkeppniseftirlitið heimilar samstarf Skeljungs og ODR sem miðar að því að tryggja aðgang að eldsneyti í öllum byggðarlögum

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað tiltekið samstarf Skeljungs og ODR sem felur í sér að fyrirtækin hafi kost á því að aðstoða hvort annað tímabundið við dreifingu eldsneytis á stöðum þar sem erfiðleikar koma upp vegna fámennis, veikinda eða annarra takmarkana sem stafa af COVID-19.

Undanþágan er tímabundin og bundin skilyrðum skilyrðum sem tryggja eiga að samstarfið verði afmarkað við þau brýnu verkefni sem leysa þarf vegna aðstæðna sem skapast kunna vegna COVID-19.

Ákvörðunin felur í sér undanþágu frá banni samkeppnislaga við samstarfi keppinauta. Ákvörðunin (nr. 14/2020) er aðgengileg hér.