Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

27. maí 2026

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn á bankageiranum.

Í frétt frá samkeppniseftirlitinu í Noregi um málið segir að bankaþjónusta, einkum kjör innlána og íbúðalána, hafi mikla þýðingu fyrir fjárhagsstöðu norskra heimila. Virkari samkeppni geti leitt til lægri vaxta á íbúðalánum, hærri innlánsvaxta og lægri þjónustugjalda. Jafnvel lítill vaxtamunur geti skipt einstök heimili miklu máli er segir í fréttinni, talið í þúsundum norskra króna á ári. „Því er mikilvægt að samkeppni milli banka sé virk og árangursrík.“

Markmið úttektarinnar er að greina og meta þá þætti á bankamarkaðnum sem kunna að hafa áhrif á samkeppni milli banka. Í því skyni mun norska samkeppniseftirlitið afla upplýsinga frá bönkum og öðrum aðilum sem hafa ítarlega þekkingu á markaðnum og starfsemi hans. Með úttektinni vill eftirlitið meðal annars fá skýrari mynd af því hvernig samkeppni á markaðnum virkar í reynd og hvort aðstæður séu til staðar sem kunna að draga úr virkri samkeppni. Komi í ljós vísbendingar um að samkeppni sé verulega takmörkuð getur eftirlitið ákveðið að hefja formlega markaðsrannsókn.

„Heimild til að framkvæma markaðsrannsóknir var tekin upp [í norsk samkeppnislög] á síðasta ári og henni er ætlað að bregðast við samkeppnisvandamálum sem ekki stafa af brotum á samkeppnislögum. Úttektin mun veita okkur trausta og uppfærða mynd af bankamarkaðnum og gera okkur kleift að meta hvort ástæða sé til að halda áfram með markaðsrannsókn,“ segir Mads Magnussen, forstjóri norska samkeppniseftirlitsins.

Mads Magnussen, forstjóri norska samkeppniseftirlitsins

Við markaðsrannsóknina getur norska samkeppniseftirlitið þá og þegar gripið til ráðstafana til að bæta samkeppni á markaðnum. „Reynslan frá öðrum löndum sýnir að slík inngrip geta skilað neytendum verulegum ávinningi.“

„Í fyrri athugunum á bankamarkaðnum höfum við meðal annars séð litla hreyfanleika viðskiptavina, ýmsar hindranir fyrir inngöngu og vexti banka á markaðnum og markaðseinkenni sem kunna að auðvelda samhæfingu vaxtastigs. Þetta hefur vakið áhyggjur af því að samkeppni milli banka hafi ekki verið nægilega virk. Við munum nú framkvæma nýjar greiningar til að meta núverandi samkeppnisstöðu,“ segir Line Djupvik Andersen, verkefnastjóri hjá norska samkeppniseftirlitinu.

Line Djupvik Andersen, verkefnastjóri hjá norska samkeppniseftirlitinu.

Samkeppniseftirlitið hér á landi mun fylgjast náið með framangreindri athugun norskra samkeppniseftirlitsins á bankamarkaðnum þar í landi og nýta sér niðurstöður hennar í eftirliti hér á landi.

Staðreyndir máls:

Úttekt á markaði

  • Úttekt á markaði er víðtæk athugun á þáttum sem kunna að hafa áhrif á samkeppni.
  • Athugunin beinist að markaðsaðstæðum fremur en einstökum fyrirtækjum.
  • Markmiðið er að greina hvernig samkeppni á markaðnum virkar og hvaða þættir kunna að hamla henni.
  • Slík úttekt er fyrsta skrefið í átt að markaðsrannsókn.

Markaðsrannsókn

  • Markaðsrannsókn er markviss athugun á tilteknum þáttum markaðarins sem takmarka samkeppni.
  • Við markaðsrannsókn getur norska samkeppniseftirlitið gripið til ráðstafana til að bæta samkeppni á viðkomandi markaði.
  • Markaðsrannsókn felur ekki endilega í sér að brot á samkeppnislögum hafi átt sér stað.
  • Málsmeðferð vegna markaðsrannsókna er lögfest í samkeppnislögum, þar á meðal reglur um málsmeðferð og lögbundna tímafresti.
  • Samkeppniseftirlitið á Íslandi hefur heimildir af þessu tagi, sbr. c-lið 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga, sbr. einnig reglur 490/2013.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Semsett mynd/SKE

Samruni Heklu og Bílson – umsagnarferli

  • 20. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.