Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

10. júní 2026
Samkvæmt samanburði Eurostat greiða íslenskir neytendur að meðaltali um 55% hærra verð fyrir matvöru en neytendur í Evrópusambandinu. Samsett mynd/SKE

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að meðaltali 55 prósent meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Aðeins í Sviss er matvara dýrari, eða 58 prósent yfir meðaltali ESB-landa. Í Noregi er vöruverð 32 prósent yfir meðaltali, en verð í Svíþjóð og Finnlandi er einungis 6 prósent yfir meðaltalinu.

Þá sýnir greiningin að frá árinu 2020 hafa mestar hækkanir á dagvörumarkaði orðið hér á landi, samanborið við nágrannalönd. Þannig hefur matvöruverð hér á landi hækkað um 46 prósent, samanborið við 37 prósent verðhækkun í ESB-löndunum. Sviss er nokkur undantekning í samanburðinum, þar sem matvöruverð hefur aðeins hækkað um 3 prósent á sama tímabili, en 32 prósent í Noregi, 22 prósent í Finnlandi og 25 prósent á Írlandi.

Af einstökum flokkum matvöru eru hérlendar mjólkurvörur dýrastar í Evrópu, eða rúmlega 90 prósent yfir meðaltali ESB-landa. Næstar koma kjötvörur, en þær eru um 75 prósent yfir meðaltalinu. Verð á kjöti hér á landi hefur hækkað mest af öllum vöruflokkum frá árinu 2020, eða um 67 prósent. Í Noregi hefur verð á mjólkurvörum hækkað tæplega helmingi minna á sama tímabili og verð á kjöti um þriðjungi minna.

Hátt verð og miklar hækkanir á kjöti og mjólk í samanburði við nágrannalönd skýrast m.a. af því að hér á landi er afurðastöðvum heimilað  að sameinast án þess að samkeppnisyfirvöld geti stöðvað samkeppnishamlandi samruna. Jafnframt er afurðastöðvum heimilað að hafa með sér samráð, án tillits til þess hvort þær séu í eigu eða undir stjórn bænda. Alls staðar annars staðar í Evrópu er samkeppnisyfirvöldum ætlað að vernda hagsmuni neytenda og bænda að þessu leyti.

Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins er gerð nánari grein fyrir vöruverði á Íslandi og samanburði við önnur Evrópulönd. Umræðuskjalið er liður í víðtækari athugun á dagvörumarkaði. Nú stendur yfir gagnaöflun sem miðar m.a. að því að kanna  álagningu dagvöruverslana og birgja og koma auga á samkeppnishindranir sem áhrif hafa á dagvöruverð hér á landi.

Stór hluti heildarútgjalda íslenskra heimila fer í matarinnkaup og er því hið háa matvöruverð hér á landi mikið áhyggjuefni. Kallar Samkeppniseftirlitið því eftir sjónarmiðum um efni umræðuskjalsins og ábendingum um samkeppnishindranir. Slíkar mögulegar samkeppnishindranir geta t.d. varðað hverskonar óeðlilegar hindranir við innflutning, framleiðslu, heildsölu og smásölu á matvöru.

Vakin er athygli á að frestur til að koma sjónarmiðum á framfæri er gefinn til 30. júní næstkomandi.

Lesa má umræðuskjalið hér.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.