Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Sameiginleg yfirlýsing ECN um samruna

26. júní 2026
ECN hefur birt sameiginlega yfirlýsingu um heimildir samkeppnisyfirvalda til að kalla inn til skoðunar samruna sem falla undir hefðbundin tilkynningarmörk. Samsett mynd/SKE

European Competition Network, (ECN), sem er samstarfsvettvangur evrópskra samkeppnisyfirvalda og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur birt sameiginlega yfirlýsingu um heimildir samkeppnisyfirvalda til að kalla inn til skoðunar samruna sem falla ekki undir hefðbundin tilkynningarmörk.

Í yfirlýsingunni er bent á að samrunar geti í ákveðnum tilvikum haft skaðleg áhrif á samkeppni þótt þeir falli utan lagaskilyrða um tilkynningarskyldu. Þetta getur m.a. átt við um kaup á nýsköpunarfyrirtækjum og kaup á smærri keppinautum eða átt við samþjöppun fyrirtækja á litlum mörkuðum.

ECN telur slíkar heimildir, að kalla inn samruna til rannsóknar sem ekki falli undir tilkynningarskyldu, geta verið mikilvægt tæki til að tryggja virkt eftirlit með samrunum. Jafnframt er lögð áhersla á að beiting þeirra sé skýr, afmörkuð og fyrirsjáanleg fyrir fyrirtæki.

Í yfirlýsingunni er vísað til reynslu ríkja sem þegar hafa tekið upp slíkar heimildir, þar á meðal Íslands. Sameiginleg afstaða ECN endurspeglar aukna áherslu evrópskra samkeppnisyfirvalda á að tryggja að samrunar með mögulega skaðleg áhrif á samkeppni komist ekki undan eftirliti.

Samkeppniseftirlitið hefur getað kallað inn samruna til skoðunar frá árinu 2008
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að hér á landi byggist slík heimild á 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, eins og henni var breytt árið 2008.

„Á Íslandi hefur Samkeppniseftirlitið frá árinu 2008 haft heimild samkvæmt samkeppnislögum til að krefjast tilkynningar um samruna sem falla undir almenn tilkynningarmörk ef verulegar líkur eru taldar á að þeir geti dregið umtalsvert úr virkri samkeppni. Heimildin er sambærileg þeim úrræðum sem fjallað er um í yfirlýsingu ECN. Hún hefur verið nýtt nokkrum sinnum og verið mikilvæg til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif samruna,“ segir hann.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Þá segir Páll Gunnar að reynslan hafi sýnt að samrunar geta í einstökum tilvikum haft veruleg áhrif á samkeppni þótt þeir uppfylli ekki almenn tilkynningarmörk.

„Það er því mikilvægt að samkeppnisyfirvöld hafi viðeigandi úrræði til að bregðast við þegar ástæða er til. Á Íslandi hefur slík heimild verið fyrir hendi um árabil og hefur reynst mikilvægt tæki til að tryggja virka samkeppni og vernda hagsmuni neytenda,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Yfirlýsinguna í heild má lesa hér.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Samrunamál í sumar, tafir og ný mál

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir ve...
  • 23. júní 2026
  • Fréttir

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...