Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

28. maí 2026
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn á bankageiranum, en slíkar rannsóknir geta leitt til aðgerða ef aðstæður á markaði eru taldar draga úr virkri samkeppni.

Í frétt norska eftirlitsins kemur fram að virk samkeppni geti m.a. leitt til lægri vaxta á íbúðalánum, hærri innlánsvaxta og lægri þjónustugjalda. Þá hafi fyrri athuganir meðal annars bent til lítils hreyfanleika viðskiptavina, hindrana fyrir nýja keppinauta og markaðsaðstæðna sem geti auðveldað samhæfingu vaxtastigs milli banka.

Páll Gunnar Pálsson, forstóri Samkeppniseftirlitsins, segir að stofnunin muni kynna sér norsku markaðsrannsóknina þegar niðurstöður hennar liggja fyrir.

„Við munum kynna okkur þessa úttekt norska samkeppniseftirlitsins og þær niðurstöður sem af henni kunna að leiða. Samkeppniseftirlitið hefur í fyrri málum tekið á ýmsum atriðum sem nú eru á dagskrá í Noregi, eins og t.d. að liðka fyrir hreyfanleika viðskiptavina milli þjónustuveitenda með því að stuðla að lægri skiptikostnaði. Það hefur Samkeppniseftirlitið gert bæði með gerð sátta við bankana og tilmælum til stjórnvalda.

Benda má á að þrátt fyrir að hlutfall rekstrarkostnaðar af tekjum íslenskra banka hafi lækkað verulega á síðustu árum og standist nú fyllilega samanburð við stærri norræna banka, þá hefur  heildarvaxtamunur íslensku bankanna ekki minnkað samhliða á sama tíma. Bankamarkaðir á Norðurlöndum eiga margt sameiginlegt og athugun norskra samkeppnisyfirvalda gæti því haft ákveðið gildi við mat á samkeppnisaðstæðum hér á landi, svo sem hvað varðar greiningu á áhrifum aukinnar tæknivæðingar í bankaþjónustu á rekstrarkostnað og vaxtamun og einnig hvað varðar aðstæður sem auðveldað geta samhæfingu vaxtastigs milli banka, “ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Heimild til markaðsrannsókna mikilvægt tæki
Þá bendir Páll Gunnar jafnframt á að Samkeppniseftirlitið á Íslandi hafi sambærilegar heimildir til að framkvæma markaðsrannsóknir samkvæmt samkeppnislögum og reglum nr. 490/2013 um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins.

„Heimildir til markaðsrannsókna eru mikilvægt tæki til að bregðast við samkeppnisvandamálum sem geta stafað af uppbyggingu markaða, hegðun fyrirtækja eða öðrum aðstæðum sem draga úr virkni samkeppni. Slíkar rannsóknir geta meðal annars beinst að samþjöppun á mörkuðum, aðgangshindrunum eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á samkeppnislegt aðhald, jafnvel þótt ekki liggi fyrir brot á samkeppnislögum. Þessum heimildum hafa hins vegar ekki fylgt fullnægjandi fjárheimildir og því hafa þær ekki nýst eins og æskilegt hefði verið“ segir Páll Gunnar.

Norska samkeppniseftirlitið mun nú afla upplýsinga frá bönkum og öðrum markaðsaðilum og verður 14 bönkum gert að afhenda nauðsynleg gögn vegna úttektarinnar.

Tengdar fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið ítarlega skoðun á samkeppni á bankamarkaði og áhrifum samþjöppunar í fjármálaþjónustu.

Lesa meira →

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kviku banka um mögulegan samruna stöðvuðust án formlegrar niðurstöðu hjá Samkeppniseftirlitinu.

Lesa meira →

Aðrar fréttir

Allar fréttir og greinar

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

„Gríðarlegir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag að það sé samkeppni á fjármálamarkaði“

Viðræður Arion banka og Kvika banka um mögulegan samruna stöðvuðust án þess að til formlegrar niðurstöðu kæmi hjá Samkeppniseftirlitinu. Þetta kom fra...
  • 27. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

Samkeppniseftirlitið óskar eftir að ráða nema í hagfræði í sumarstarf. Í starfinu gefst kostur á að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast gr...
  • 22. apríl 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.