Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

„Fákeppni leiðir til þess að samkeppni slævist“

29. júní 2026
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins kom fram í hlaðvarpsþætti Gímaldsins og ræddi þar um samkeppni á dagvörumarkaði. Samsett mynd/SKE

Gímaldið birti í liðinni viku hlaðvarpsþátt um hátt matvöruverð á Íslandi og samkeppni á dagvörumarkaði. Meðal viðmælenda var Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Umfjöllunin byggði meðal annars á nýlega birtu umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um dagvörumarkaðinn, þar sem fram kemur að Íslendingar greiða að meðaltali 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar í nágrannalöndunum og Evrópusambandsins.

Í þættinum ræddi Páll Gunnar um þær aðstæður sem hafa áhrif á samkeppni á íslenskum dagvörumarkaði. Hann sagði að samkeppni ætti víða undir högg að sækja vegna ýmissa aðgangshindrana sem einkenna íslenskt hagkerfi.

„Við búum í litlu hagkerfi þar sem samkeppni á alltaf á brattann að sækja vegna þess að við erum með miklar aðgangshindranir við legu landsins, sérstakan gjaldmiðil, tollvernd sem stundum á sér einhver rök en stundum alls ekki og gríðarlega öfluga hagsmunavernd, sérstaklega stærri fyrirtækja, síður neytenda, sem gera aðstæður mjög erfiðar fyrir samkeppni.“

Páll Gunnar sagði að þegar samkeppni væri takmörkuð færðist hún gjarnan af verði yfir á aðra þætti.

„Fákeppni leiðir til þess að samkeppni slævist. Fyrirtæki búa ekki við nógu mikla hvata til þess að hagræða í rekstri. Í fákeppnisumhverfi gerist það stundum að fyrirtæki upplifa sig í samkeppni þegar það er verið að keppa í öðru heldur en verði. Það er verið að keppa í fleiri afgreiðslustöðvum, betri framsetningu, flottara húsnæði og svo framvegis.“

Páll Gunnar ræddi einnig um þróun á kjöt- og mjólkurmarkaði og sagði að reynslan sýndi mikilvægi þess að skapa samkeppnisskilyrði sem stuðluðu að lægra verði og sterkari rekstri til lengri tíma.

„Í kjölfarið af samráðsmáli hérna um síðustu aldamót ákváðu stjórnvöld, eftir tilmælum samkeppnisyfirvalda, að fella niður tolla, draga úr innflutningsvernd og breyta stuðningi við bændur. Þetta leiddi síðan af sér að sú grein styrktist í samkeppnisumhverfi þar sem innlend fyrirtæki þurftu bara að standa sig, og þau stóðu sig,“ sagði Páll Gunnar.

Um þróunina á kjöt- og mjólkurmarkaði sagði Páll Gunnar:

„Í kjötinu þá höfum við farið þveröfuga leið og í mjólkinni líka og það getur ekki til lengri tíma komið þessum greinum til góða, vegna þess að það sem gerist þá er að verð hækkar, bændur sitja við skarðan hlut.“

Auk Páls Gunnars komu fram í þættinum Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku, Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri Verðlagseftirlits ASÍ, og Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna.

Lesa má umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins, Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB, á vef eftirlitsins hér og hlusta má hlaðvarpsþáttinn hér í spilaranum hér fyrir neðan.

 

Tengt efni

Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Ný greining Samkeppniseftirlitsins sýnir að matvöruverð á Íslandi er 55% hærra en að meðaltali í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Lesa meira →

Umræðuskjal nr. 1/2026 – Dagvöruverð og samanburður við útlönd

Í umræðuskjalinu er þróun dagvöruverðs á Íslandi borin saman við önnur Evrópulönd og fjallað um stöðu samkeppni á markaðnum. Lesa meira →

Samkeppnin eigi á brattann að sækja í litlu hagkerfi

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, ræðir stöðu samkeppni og háa matvöruverðlagningu á Íslandi í viðtali við RÚV. Lesa meira →

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Sameiginleg yfirlýsing ECN um samruna

European Competition Network, (ECN), sem er samstarfsvettvangur evrópskra samkeppnisyfirvalda og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur birt same...
  • 26. júní 2026
  • Fréttir

Samrunamál í sumar, tafir og ný mál

Vegna sumarleyfa og mikilla anna við rekstur samrunamála sem nú eru til formlegrar meðferðar (þegar tilkynntir samrunar) er fyrirsjáanlegt að tafir ve...
  • 23. júní 2026
  • Fréttir

Landsréttur leggur fyrir héraðsdóm að fjalla um ólögmætt samráð Samskipa og Eimskips

Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efn...
  • 15. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...