Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

22. maí 2026

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á markaði.

Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar erindi frá hljóðbókaveitunni Sagnalandi þar sem kvartað var undan meintri misnotkun Storytel á markaðsráðandi stöðu. Sagnaland telur að Storytel hafi brugðist við opnun Sagnalands með því að kynna mun lægra tilboð en samkvæmt hefðbundinni verðskrá fyrirtækisins. Sagnaland vísar til þess að Storytel sé markaðsráðandi á markaðnum og að aðgerðir fyrirtækisins séu til þess fallnar að skaða lítinn keppinaut sem sé að hefja starfsemi á íslenskum hljóðbókamarkaði.

Í erindinu sagði:

„Þó að samkeppni sé alla jafna af hinu góða fyrir neytendur þá vakna spurningar um hvort svo ör og sértæk verðviðbrögð af hálfu markaðsráðandi aðila með yfir 50.000 notendur (sá eini á Íslandi) geti talist til ótilhlýðilegra viðskiptahátta, sérstaklega ef markmiðið er að hindra innkomu nýrra aðila á hljóðbókamarkaðinn.“

Samkeppniseftirlitið sendi Storytel bréf þar sem tilkynnt var að til skoðunar væri að taka bráðabirgðaákvörðun vegna meintrar skaðlegrar undirverðlagningar Storytel. Þá var óskað eftir nánari upplýsingum frá fyrirtækinu og sjónarmiðum þess. Í bréfinu benti Samkeppniseftirlitið á að afleiðingar undirverðlagningar markaðsráðandi fyrirtækis geti verið að veikari keppinautar sjái ekki ástæðu til að taka þátt í samkeppni og geti neyðst til að hætta starfsemi. Sérstaklega alvarlegt þyki þegar fyrirtæki með áberandi sterka stöðu á markaði beitir undirverðlagningu í tengslum við innkomu nýs samkeppnisaðila sem er að reyna að ná fótfestu á markaði.

Í svörum Storytel kom m.a. fram að fyrirtækið teldi sig ekki vera markaðsráðandi og hafnaði því að umrætt tilboð, sem hafi beinst að takmörkuðum hópi fyrrum áskrifenda, hafi falið í sér skaðlega undirverðlagningu.

Eftir athugun á gögnum málsins telur Samkeppniseftirlitið að ekki séu á þessu stigi forsendur til að taka bráðabirgðaákvörðun vegna erindisins. Við mat á því hvort tilefni væri til að taka bráðabirgðaákvörðun var m.a. litið til þess að Storytel lagði fram gögn sem gáfu til kynna að umræddu tilboði hafi ekki sérstaklega verið beint að innkomu Sagnalands á markað.

Hins vegar hefur Samkeppniseftirlitið brýnt fyrir Storytel að huga að stöðu sinni á markaðnum og gæta sérstakrar varúðar í markaðssetningu og tilboðum til viðskiptavina á samkeppnislega viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir að ná fótfestu á markaði.

Samkeppniseftirlitið kann eftir sem áður að taka málið til frekari rannsóknar á síðari stigum, ef ástæða þykir til. Jafnframt hefur Samkeppniseftirlitið háttsemi Storytel til rannsóknar í öðru máli, þar sem m.a. er til skoðunar hvernig skilgreina beri þá markaði sem Storytel starfar á.

Bakgrunnsupplýsingar:

Samkeppniseftirlitinu er heimilt að taka ákvarðanir til bráðabirgða um einstök mál ef:

a) Sennilegt þykir að sú háttsemi eða þær aðstæður sem til athugunar eru fari gegn ákvæðum samkeppnislaga eða ákvörðunum teknum á grundvelli þeirra eða ef athafnir opinberra aðila hafa skaðleg áhrif á samkeppni og

b) líklegt er að bið eftir endanlegri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins leiði til röskunar á samkeppni sem verði afstýrt með endanlegri ákvörðun eða málið að öðru leyti þolir ekki bið.

Lesa má bréf sem Samkeppniseftitlitið sendi frá sér vegna þessa hér.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
SKE eldsneytismarkaður

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili s...
  • 4. maí 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.