Samkeppni Logo

Samruni afurðarstöðva ógiltur í Þýskalandi – Samanburður við Ísland

13. júní 2025

Í gær ógilti þýska samkeppniseftirlitið kaup afurðarstöðvarinnar Tönnies á sláturhúsum Vion. Samruninn var ógiltur meðal annars vegna þess að hann myndi styrkja stöðu Tönnies og hafa skaðleg áhrif á bændur og minni keppinauta. Að mati samkeppnisyfirvalda hefði samruninn veikt stöðu bænda með því að draga úr möguleikum bænda að velja sér afurðarstöð og færa slátrunina annað.

Nánari upplýsingar um málið má finna í enskri fréttatilkynningu hér.

Á Íslandi hefur Samkeppniseftirlitið ekki lengur heimild til þess að rannsaka áhrif sem samruni afurðarstöðva gæti haft á bændur og neytendur. Hafa talsmenn undanþága búvörulaganna ranglega haldið því fram að þær eigi sér fyrirmynd í nágrannalöndum. Brýnt er að frumvarp atvinnuvegaráðherra um afnám undanþáganna verði afnumdar án tafar.

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.