Samkeppni Logo
Senda ábendingu
Senda gögn
Valmynd
  1. Forsíða
  2. Útgefið efni
  3. Fréttir

Eftirlit nauðsynlegt á fákeppnismarkaði

4. maí 2026
SKE eldsneytismarkaður

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sjónvarpsfréttum RÚV að umfang eftirlits með því hvort lækkun á eldsneytisverði skili sér til neytenda muni ráðast af viðbrögðum olíufélaga. Tilefnið er lagasetning frá Alþingi um breytingar á lögum um virðisaukaskatt á eldsneyti sem tók gildi 1. maí, þar sem virðisaukaskattur á eldsneyti var tímabundið lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent.

Lagaákvæðið skyldar olíufélög og aðra söluaðila eldsneytis til að skila lækkuninni að fullu til neytenda. Samkeppniseftirlitið hefur eftirlit með framkvæmd ákvæðisins og getur lagt til stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem brjóta gegn því. Þá er ráðherra heimilt, að fenginni umsögn eftirlitsins, að grípa til tímabundinna aðgerða, svo sem að setja hámarksverð eða hámarksálagningu, eða beita annarri stýringu á verðlagningu og viðskiptakjörum.

Lækkunin er hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda til að bregðast við hækkunum á eldsneytisverði, meðal annars vegna áhrifa stríðsátaka í Miðausturlöndum.

„Eftirlitið ræðst af því hver viðbrögð félaganna eru. Ef að fyrirtækin, eins og maður getur gert ráð fyrir í samkeppnisumhverfi, nýta tækifærið og fara að keppa, sækja markaðshlutdeild og svo framvegis, þá vakna kannski engar spurningar og eftirlitið verður auðvelt. Ef félögin hins vegar draga lappirnar og við sjáum að álagningin fari fljótlega upp aftur, þá getur eftirlitið orðið viðameira,“ sagði Páll Gunnar.

Þá ítrekaði Páll Gunnar Pálsson að ekki sé æskilegt að grípa til íþyngjandi aðgerða gagnvart fyrirtækjum á markaði, en slíkt geti reynst nauðsynlegt þar sem ríkir fákeppni á markaði.

„En ég held að það sé nauðsynlegt, einfaldlega vegna þess að það ríkir fákeppni á þessum markaði og samkeppnin er ekki nægilega frísk, það eru allar vísbendingar um það. Þess vegna er þetta nauðsynlegt,“ sagði Páll Gunnar Pálsson.

Frekari upplýsingar og svör við helstu spurningum um framkvæmd og eftirlit með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti má sjá hér.

Aðrar fréttir

Allar fréttir og útgefíð efni

Íslendingar greiða 55 prósent hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB

Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag kemur fram að verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta í Evrópu. Þannig greiða Íslendingar að...
  • 10. júní 2026
  • FréttirÍ brennidepli

Samrunatilkynning vegna kaupa Lyfju á Borgar Apóteki afturkölluð

Lyfja hf. hefur tilkynnt Samkeppniseftirlitinu að félagið og eigandi XY-lyfja ehf., sem rekur Borgar Apótek, hafi komist að samkomulagi um að falla fr...
  • 5. júní 2026
  • Fréttir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Samsett mynd/SKE

Samkeppniseftirlitið fylgist með úttekt Norðmanna á bankamarkaði

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsó...
  • 28. maí 2026
  • Fréttir

Norska samkeppniseftirlitið tekur bankamarkaðinn til skoðunar

Norska samkeppniseftirlitið hefur hafið úttekt á samkeppni á bankamarkaði þar í landi og er þetta fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri markaðsrannsókn ...
  • 27. maí 2026
  • Fréttir

Óskað eftir umsögnum um samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar samruna TVG Zimsen / Eimskips og Cargo Express. Cargo Express selur aðallega flutningsþjónustu með fraktflugi...
  • 26. maí 2026
  • Fréttir

Í tilefni af umfjöllun um „reglur Samkeppniseftirlitsins“ og hópuppsagnir

Í fjölmiðlaumfjöllun vegna hópuppsagna hjá Berjaya Hotels Íslandi, í tengslum við mögulega yfirtöku Íslandshótela á rekstri hótela Berjaya, hefur m.a....
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar

Samkeppniseftirlitið beinir því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu og verðtilboðum á viðkvæmum tíma þegar nýr aðili reynir fyrir sér á mar...
  • 22. maí 2026
  • Fréttir

Kaup Kaldalóns á fasteignum FÍ Fasteignafélags samþykkt

Samkeppniseftirlitið hefur lokið umfjöllun um kaup Kaldalóns hf. á öllum fasteignum í eigu FÍ Fasteignafélags slhf. Niðurstaða eftirlitsins er að samr...
  • 11. maí 2026
  • Fréttir
Eldsneytismarkaður-4

Samkeppniseftirlitinu falið að fylgjast með verðlagningu á eldsneyti

Ný lög um breytingar á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum , voru samþykkt á Alþingi í gær 29. apríl. Þau fela í sér tímabundna lækkun á virði...
  • 30. apríl 2026
  • FréttirÍ brennidepli
Samkeppni Logo
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Pósthólf: 5120
Sími: 585 0700

Flýtileiðir

  • Úrlausnir
  • Lög og reglur
  • Kvartanir og erindi
  • Leiðbeiningarsíður

Málefni

  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir

SKE

  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Persónuvernd
Ný vefsíða (Beta)
Senda ábendingu
Senda gögn
  • Úrlausnir
  • Ákvarðanir
  • Álit
  • Umsagnir
  • Úrskurðir
  • Skýrslur og rit
  • Málefni
  • Ólögmætt samráð
  • Markaðsráðandi staða
  • Samrunamál
  • Samkeppni og hið opinbera
  • Markaðsrannsóknir
  • Fræðsla
  • Markaðsskilgreiningar
  • Samkeppnisvísar
  • Leiðbeiningarsíður
  • Samtal um samkeppni
  • Algengar spurningar
  • Kvartanir og erindi
  • Lög og reglur
  • Útgefið efni
  • Fréttir
  • Pistlar
  • Í brennidepli
  • Myndbönd
  • Ræður og kynningar
  • Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti
  • Um Samkeppniseftirlitið
  • Stjórn og stjórnsýsla
  • Skipulag og stefnumótun
  • Mannauður
  • Málsmeðferð
  • Áfrýjunarnefnd
  • Erlent samstarf
  • Merki Samkeppnis­eftirlitsins
  • Stjórnsýsluúttekt
  • Hafa Samband

Leit

Leita..

Gervigreindin er að hugsa...

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.