Samkeppni Logo

Sumarstarf fyrir hagfræðinema hjá SKE

22. apríl 2026

Samkeppniseftirlitið óskar eftir að ráða nema í hagfræði í sumarstarf. Í starfinu gefst kostur á að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast greiningum á mörkuðum, vinnslu gagna og undirbúningi mála. Nemar fá þannig innsýn í hvernig hagfræðileg sjónarmið nýtast við mat á samkeppni og ákvarðanatöku innan stjórnsýslunnar.

Starfið hentar sérstaklega nemum sem hafa lokið grunnnámi eða eru komnir vel áleiðis í námi í hagfræði og hafa áhuga á samkeppnismálum, markaðsgreiningu og opinberri stefnumótun.

Sumarstarf hjá Samkeppniseftirlitinu veitir verðmæta reynslu af störfum innan stjórnsýslunnar og gefur nemum tækifæri til að vinna með sérfræðingum á sviði samkeppnismála.

Upplýsingar um starfið veitir Karítas Margrét Jónsdóttir, rekstrarstjóri. Hægt er hafa samband með tölvupósti á netfangið karitas@samkeppni.is og í síma 585 0700.

Nánari upplýsingar um starfið er að finna á Starfatorgi

Leit

Nýr vefur samkeppni.is

Á dögunum var settur í loftið Beta útgáfa af nýjum vef. Við tökum glöð á móti öllum ábendingum og athugasemdum varðandi nýja vefinn í gegnum formið hér að neðan.

"*" gefur til kynna skyldusvið

Þetta reit er til staðfestingar og skal vera óbreyttur.